Tónlist

Nýtt myndband frá Robert the Roommate

Hljómsveitin Robert the Roommate hefur sent frá sér myndband við lagið, I Will Catch You When You Fall sem kom út á þeirra fyrstu breiðskífu á síðasta ári.

Myndbandið er tekið upp í suður Svíþjóð og leikstýrt og stíliserað af þeim Friðriki Árnason og Gígju Isis, en þau fengu sænska vini sér til aðstoðar við upptökur. Skotin á Íslandi eru mynduð af Daníel Poul Purkhús.

„Þetta er fyrsta myndbandið sem við sendum frá okkur og við erum mjög sátt við þetta glæsilega myndband. Það er hálfgerð draumkennd sem kemur fyrir í myndbandinu og er það tekið upp á fallegum stað í suður Svíþjóð," segir Rósa Guðrún Sveinsdóttir söngkona og flautuleikari sveitarinnar.

Sveitin var stofnuð á vormánuðum ársins 2010 með það í huga að leika lög eftir söngvaskáld 7. og 8. áratug síðustu aldarar. En uppúr árinu 2011 fóru liðsmenn Robert the Roommate að leika eigin lög sem komu síðan út á síðasta ári.

Þess má geta að sveitin heldur tónleika á Café Rósenberg næstkomandi föstudagskvöld klukkan 22.00. Þar verður áhersla lögð á lög eftir hljómsveitarmeðlimi Led Zeppelin. „Við flytjum eigið efni líka en erum miklir Zeppelin-aðdáendur. Það verður rosalegt stuð á Rosenberg," bætir Rósa Guðrún við.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×