Tónlist

Nýtt myndband frá One Direction

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Hljómsveitin One Direction hefur gefið frá sér tónlistarmyndband við lagið You & I.

Í myndbandinu sjást meðlimir sveitarinnar, þeir Zayn Malik, Louis Tomlinson, Liam Payne, Harry Styles og Niall Horan, ganga um á bryggju og syngja lagið.

Sveitin hefur notið gríðarlegra vinsælda síðustu misseri en þeir lentu í þriðja sæti í sjöundu seríu af breska X Factor árið 2010. Í kjölfarið skrifuðu strákarnir undir samning við tónlistarútgáfu mógúlsins Simons Cowell, Syco Records.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×