Innlent

Nýtt leirgos á Reykjanesi: „Mér brá virkilega“

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
„Ég hef farið þangað í mörg ár og það hefur verið hver þarna lengi. En það hefur bara rétt gutlað upp úr honum,“ segir Olgeir Andrésson ljósmyndari. Olgeir var einn þeirra fyrstu sem varð var við leirhver sem tók heldur betur við sér í gær.

Hverinn má sjá í myndbandi neðst í fréttinni.

Líkt og fjallað hefur verið um í vikunni hefur orðið vart við aukna virkni við Gunnuhver á Reykjanesi. Hverinn ku vera virkasti leirhver landsins en í kvöldfréttum Stöðvar 2 sást meðal annars hvernig útsýnispallur varð hinni auknu virkni að bráð.

Olgeir mætti á svæðið í gær og myndaði Gunnuhver í bak og fyrir. Í kjölfarið hafi hann gengið um svæðið eins og hann sé vanur að gera.

„Allt í einu heyri ég þessi svakalegu læti fyrir aftan mig. Þá var gos hafið í hvernum fyrir aftan mig,“ segir Olgeir. Hann telur að gusurnar hafi náð sjö til tíu metra hæð. Gosið hafi á um tíu mínútna fresti.

„Mér brá virkilega,“ segir Olgeir.

Í myndbandinu að ofan má sjá umfjöllun úr kvöldfréttum Stöðvar 2 frá því í gærkvöldi en að neðan myndband af nýja hvernum sem Olgeir myndaði um miðjan dag í gær. Myndbandið má sjá í betri upplausn hér.

Hann segir ekki gott fyrir hinn almenna borgara að finna nýjan hverin sem þó er á Gunnuhverssvæðinu. Nýi hverin gæti því verið vel geymt leyndarmál í bili að minnsta kosti.

„Þú sérð þetta ekki úr fjarlægð nema þú vitir af þessu,“ segir Olgeir.

Gesti við Gunnuhver í gær fannst lyktin ekkert sérstaklega góð.Vísir/GVA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×