Tónlist

Nýtt lag og myndband með Trptych

Stefán Árni Pálsson skrifar
Daníel Þorsteinsson og Guðni Einarsson mynda þetta teymi.
Daníel Þorsteinsson og Guðni Einarsson mynda þetta teymi. vísir
Daníel Þorsteinsson (Danni) og Guðni Einarsson skipa techno dúóið TRPTYCH. Kapparnir hafa verið sveittir í stúdíóinu að undanförnu og er afraksturinn EP plata sem lítur dagsins ljós á næstu vikum.

Í dag frumsýnir Albumm.is nýtt lag og myndband með sveitinni sem nefnist „Lust“ og óhætt er að segja að lagið er algjör „banger“ og á svo sannarlega eftir að hljóma á ófáum dansgólfum um ókomna tíð.

Ekki nóg með það heldur voru drengirnir einnig að henda glæsilegri vefsíðu í loftið. Danni og Guðni svöruðu nokkrum spurningum  í samtali við Albúmm um lagið, myndbandið og hvað er framundan svo fátt sé nefnt.

Hvenær var TRPTYCH stofnuð og hvernig kom það til?

Danni: TRPTYCH var stofnuð fyrir rétt rúmu ári síðan, sirka apríl 2015. Þá ég var sjálfur svona á milli projecta og tilbúinn í eitthvað vel ferskt.

Guðni: Já, þetta var þannig að Danni hafði samband við mig varðandi remix fyrir Sometime. Út frá því projekti ákváðum við að vinna meira saman og úr varð TRPTYCH.

Danni: Þetta var bara réttur tími fyrir okkur báða.

Hvað getið þið sagt okkur um lagið og myndbandið og hver er hugmyndin á bakvið myndbandið?

Guðni: Eins og með flest lögin okkar þá byrjuðum við að djamma á græjurnar og þannig fæddist grunnurinn. Við vorum báðir sammála um að gera frekar „straight forward” techno með stóru sándi sem ég held að hafi heppnast svona helvíti vel. Danni á allan heiðurinn að myndbandinu!

Danni: Tónlistin er náttúrulega mjög sexý og við vildum að visualarnir héldust í hendur við það. Ég gerði sjálfur vídeóið og ég vinn yfirleitt þannig að ég er með ákveðnar hugmyndir sem ég leyfi samt að þróa í vinnsluferlinu, alveg eins og að gera tónlist. Við erum með ákveðna stefnu en svo endar maður á einhverjum stað þar sem maður bjóst alls ekki við og kemur sér þannig á óvart. Það er svo gaman og það er það sem skiptir máli – að það sé gaman að skapa hlutina og ég vona að það skíni í gegn, bæði í tónlistinni og visualölunum. Svo fékk ég líka hjálp hjá Ingrid Karis til að leikstýra Ingu Magnes sem stóð sig frábærlega vel og Hildigunnur Larsen sá um förðunina og var líka í því að halda á allskonar „greenscreen thingies“ út um allt.

Er stefnan sett á mikla spilamennsku og á að trylla lýðinn á dansgólfum bæjarins í sumar?

Guðni: Já, það eru skemmtilegir tímar framundan. Erum að fara á túr í Þýskalandi í júlí sem okkur hlakka mikið til, spilum m.a. á hinum goðsagnakennda stað Berghain. Þetta verður fyrsti alvöru túrinn okkar þannig að það verður gaman að sjá hvernig þetta fer. Svo eru við að sjálfsögðu að spila á Secret Solstice í júní sem verður fjör.

Danni: Við erum núna í því að æfa upp live show og það gengur rosalega vel. Við erum báðir þannig að við meikum ekki að hafa eitthvað fake playback, þannig að þetta er rosalega live og mikið að improvi. Engin æfing og ekkert gigg er eins.

Eru drengirnir að vinna í meira efni, kannski plötu?

Guðni: Heldur betur. Vorum að klára fyrstu EP-ina okkar sem kemur út núna á næstu vikum.

Danni: Við erum alveg búnir að vera að vinna í stúdíóinu alveg frá því að við stofnuðum TRPTYCH. Bandið er búið að þróast mikið, við erum ekkert að nota lögin sem við gerðum fyrst og erum búnir að nota þennan tíma til að þróa stílinn okkar. En nú er kominn tími til að spila live og kynna okkur betur. Planið er svo að gera þrjár þriggja laga ep plötur og svo eina LP plötu sem tengir þær allar saman.

Hvað er framundan hjá TRPTYCH?

Guðni: Erum með nokkrar endurhljóðblandanir í farteskinu sem þarf að klára og svo auðvita undirbúningur fyrir vertíðina í sumar.

Danni: já og fleiri vídeó, ný lög og launcha TRPTYCH.COM






Fleiri fréttir

Sjá meira


×