Tónlist

Nýtt lag og myndband frá sigurvegara Músíktilrauna

Stefán Árni Pálsson skrifar
Flott band.
Flott band. vísir
Hljómsveitin Rythmatik, sigurhljómsveit Músíktilrauna, sendi frá sér nýtt lag á dögunum auk tónlistarmyndbands.

Lagið var tekið upp í Orgelsmiðjunni af Þórarni Guðnasyni sem einnig er þekktur fyrir störf sín sem gítarleikari hljómsveitarinnar Agent Fresco, en hann annaðist alla vinnslu lagsins. Myndbandið var tekið upp og leikstýrt af Ágústi Elí Ásgeirssyni sem síðustu misseri hefur unnið sér til frægðar fyrir störf með ýmsum landsþekktum tónlistarmönnum.

Rythmatik er fjögurra manna indie-rokkhljómsveit sem skipuð er meðlimum frá Suðureyri og Akureyri. Hljómsveitin spilar rokk með áherslu á skemmtileg gítarriff og tekur mikil áhrif frá stefnum og straumum Bretlands á níunda áratugnum og þeim hljómsveitum sem voru ríkjandi á þeim tíma.

Eftir að hafa unnið Músíktilraunir árið 2015 eyddi hljómsveitin sumrinu í að spila á tónleikum og hátíðum bæði heima og erlendis. Um haustið kom svo út fyrsta EP plata sveitarinnar, Epilepsy sem inniheldur lagið Sleepyhead sem fram að þessu hefur verið vinsælasta lag sveitarinnar.

Nýjasta lag sveitarinnar, Sugar Rush, er það fyrsta af væntanlegri breiðskífu sem hljómsveitin er að vinna í þessa dagana.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×