Tónlist

Nýtt lag og myndband frá ₩€$€₦

Stefán Árni Pálsson skrifar
Skemmtilegt lag.
Skemmtilegt lag. vísir
Reykvíska hljómsveitin ₩€$€₦ (WESEN) sendi í gær frá sér nýjan singul, lagið Beach Boys, en fyrsta breiðskífa sveitarinnar mun koma út 14. október næstkomandi hjá bresku plötuútgáfunni Hidden Trail Records.

Meðfylgjandi tónlistarmyndband var frumsýnt á bresku tónlistarfréttasíðunni The Line of Best Fit, en þar má lesa frekar um lagið.

Sveitina skipa Júlía Hermannsdóttir (Oyama) og Loji Höskuldsson (Sudden Weather Change). Árni Rúnar Hlöðversson (FM Belfast) mixaði lagið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×