Tónlist

Nýtt lag frá Starwalker

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Barði Jóhannsson, sem er hvað þekktastur úr Bang Gang og Lady & Bird, og Jean-Benoit Dunkel, annar forsprakki hljómsveitarinnar Air mynda tvíeykið Starwalker en nýtt lag frá þeim félögum, Blue Hawaii, er komið í spilun.

Hægt er að hlusta á nýja lagið hér fyrir neðan en hljómsveitin Starwalker var stofnuð í fyrra og var mikil dulúð yfir verkefninu fyrst um sinn.

Plata frá þeim Barða og Jean-Benoit er væntanleg í byrjun apríl á næsta ári en Starwalker kom í fyrsta sinn fram opinberlega á tónlistarhátíðinni Sónar Reykjavík í febrúar á þessu ári.


Tengdar fréttir

Uppgjör á Sónar Reykjavík

Hafrún Alda Karlsdóttir og Kristín Larsdóttir Dahl voru á staðnum fyrir hönd Bast Magazine.

Opinberun Starwalker á Sónar

Starwalker, sem er dúett þeirra Barða Jóhannssonar úr Bang Gang og JD Dunckel úr Air, kemur fram í fyrsta sinn opinberlega á Sónar Reykjavík í febrúar.

Sýrt myndband Starwalker hressir

Barði Jóhannson, kenndur við Bang Gang, og JB Dunckel úr Air skipa hljómsveitina Starwalker. Þeir frumsýndu myndband við lagið Losers Can Win á vef Rolling Stone Magazine.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×