Lífið

Nýtt lag frá Ólafi F: „Fortíð mín innan um skuggaverur stjórnmálanna í Ráðhúsinu, langt að baki“

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Ólafur F. Magnússon, fyrrverandi borgarstjóri, hefur sent frá sér nýtt lag. Það ber titilinn Gott og göfugt hjarta.

Ólafur samdi lagið sjálfur sem og ljóðið en Guðlaug Dröf Ólafsdóttir syngur með honum. Útsetning, hljóðfæraleikur og hljóðritun var í höndum Vilhjálms Guðjónssonar og kvikmyndataka og klipping í umsjón Friðriks Grétarssonar.

„Tilurð lagsins er sú, að ég settist við tölvuskjáinn snemma dags á útmánuðum og varð hugsað til þess, hve glaður yngsti sonur minn var oft í æsku og minntist þess, þegar hann sagði: „Pabbi, ég er með svo glatt hjarta.“ Nær samstundis kom laglínan, sem breyttist úr „Ég er með glatt hjarta“ í „Gott og göfugt hjarta“ til að stuðla mætti og höfuðstafa það sem á eftir kæmi,“ segir Ólafur

„Endanleg gerð lags og ljóðs var komin 9. apríl sl. en lagið hefur dýpkað og orðið íburðarmeira frá þeim tíma fyrir tilstuðlan tónmeistara míns og útsetjara Vilhjálms Guðjónssonar, sem leikur á öll hljóðfæri í laginu. Söngkennari minn og söngkonan Guðlaug Dröfn Ólafsdóttir sá til þess, að söngur minn við lagið er býsna góður og hún hjálpar til í söngnum, bæði með röddun og samsöng, og gerir það geysivel, enda mikið lærð og frábær söngkona,“ bætir borgarstjórinn fyrrverandi við

„Það var hugmynd Friðriks kvikmyndatökumanns að taka myndband með mér fyrir framan Ráðhúsið, því að honum fannst kjörið að láta texta lagsins þar sem segir „Gakktu veginn góða“ fylgja mynd af mér að ganga einmitt veginn út í birtuna frá Ráðhúsinu með allt sitt undirmál og óheilindi, eins og ég gerði líka á miðjum síðasta borgarstjórnarfundi mínum, 1. júní 2010, þegar ég gekk út í sólina og vorið og yfirgaf þá hraklegu samkundu sem borgarstjórn Reykjavíkur er orðin. Eins og myndbandið og mín fallegu lög og ljóð bera með sér er fortíð mín innan um skuggaverur stjórnmálanna í Ráðhúsinu, langt að baki!



Já, ég geng fram veginn, mót birtu lífsins og stend „beinn í stafni, stælt uns birta dvín.”

Ljóðið í heild fylgir hér að neðan:

Gott og göfugt hjarta 

og gæfan við þér skín.

Framtíð færðu bjarta

friður berst til þín.

Láttu af þér leiða 

ljúfan sannleikann.

Engan átt að meiða 

ekki nokkurn mann.

Gakktu veginn góða

gæsku inn um dyr.

Söngur hátt mun hljóða

hátt sem aldrei fyrr.

Í Kristíkærleiks nafni 

kemur ljós til þín.

Stattu beinn í stafni

stælt uns birta dvín.

 


Tengdar fréttir

Ólafur F. hefur aldrei verið hamingjusamari

Læknirinn og fyrrverandi borgarstjórinn Ólafur Friðrik Magnússon hefur á undanförnum vikum sent frá sér tvö ný lög, sem hann bæði semur og syngur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×