Tónlist

Nýtt lag eftir langt hlé

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
vísir/getty
Tónlistarkonan Fergie er búin að gefa út lagið L.A. Love (La La) en lagið verður að finna á nýrri plötu sem hún er með í bígerð.

Fergie hefur ekki gefið út plötu í átta ár en nýja lagið gefur vísbendingar um í hvaða átt hún stefnir tónlistarlega séð.

Ekki er ljóst hvenær nýja platan kemur út en hægt er að kaupa nýja slagarann á iTunes.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×