Lífið

Nýtt lag Beyoncé ýtir undir sögusagnir um skilnað

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Beyoncé og Jay Z.
Beyoncé og Jay Z. vísir/getty
Bút úr nýju lagi Beyoncé, Ring Off, var lekið á internetinu í vikunni en lagið verður á nýrri plötu söngkonunnar sem kemur út í lok þessa mánaðar.

Lagið hefur ýtt undir þann þráláta orðróm að Beyoncé og eiginmaður hennar, rapparinn Jay Z, séu að skilja því í laginu syngur Beyoncé um konu sem er að jafna sig á misheppnuðu sambandi.

„Ég var eitt sinn sú sem átti hjarta hans," syngur Beyoncé meðal annars og bætir við að hún hafi fengið nóg og tekið af sér giftingarhringinn. Búið er að fjarlægja lagastúfinn af internetinu.

Sögusagnir um að Beyoncé og Jay Z væru að skilja fóru af stað í sumar, þremur mánuðum eftir að systir söngkonunnar, Solange, réðst að Jay Z í lyftu eftir MET-ballið.

Stjörnuparið hefur hins vegar aldrei tjáð sig um þessar sögusagnir.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×