Bílar

Nýtt heimsmet í drifti

Finnur Thorlacius skrifar
Reglulega berast nú fréttir af því að nýtt heimsmet hafi verið sett í að drifta bílum, þ.e. að aka þeim á hlið samfellt sem lengsta vegalengd.

Núna er metið semsagt komið í 144,1 km og tók það þýska ökumanninn Harald Müller 2 klukkutíma og 25 mínútur að bæta fyrra heimsmetið sem sett var á BMW M5 bíl og var 82,5 kílómetrar.

Nýja metið var sett á Toyota GT86 bíl sem er talsvert aflminni bíll en BMW M5. Brautin, ef braut skildi kalla, er aðeins 225 metra langur hringur og er þyrlulendingarpallur.

Það þurfti ansi mikið að væta brautina á meðan á mætbætingunni stóð, en annars hefðu dekk GT86 bílsins spænst undan bílnum mjög hratt. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×