Tíska og hönnun

Nýtt andlit Lancome

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Vísir/Getty
Leikkonan Lupita Nyong'o tilkynnti á Instagram-síðu sinni að hún væri nýtt andlit snyrtivörurisans Lancome.

„Það er mikill heiður að ganga til liðs við Maison Lancome, merki sem býr yfir fágaðri sögu og merki sem ég hef alltaf elskað,“ segir Lupita meðal annars í myndbandi á síðunni.

Lupita er ein eftirsóttasta leikkonan í Hollywood um þessar mundir og hlaut meðal annars Óskarsverðlaunin fyrir stuttu fyrir frammistöðu sína í kvikmyndinni 12 Years a Slave.
















Fleiri fréttir

Sjá meira


×