Lífið

Nýtt andlit Chanel

Kristen Stewart lætur reyna á fyrirsætuhæfileikana á ný.
Kristen Stewart lætur reyna á fyrirsætuhæfileikana á ný. Vísir/getty
Karl Lagerfeld, yfirhönnuður tískufyrritækisins Chanel, tilkynnti eftir hátískusýningu þeirra á þriðjudag að Twilight leikkonan Kristen Stewart myndi bætast í hóp þeirra sem munu sitja fyrir í stóru handtösku auglýsingum fyrirtækisins.

Stewart mun bætast í hóp með engum öðrum en leikkonunni Vanessu Paradis og fyrirsætunni Alice Dellal. Stewart hafði áður setið fyrir í auglýsingum fyrir Métier D'Art herferð Chanel og hefur Lagerfeld augljóslega heillast svo af leikkonunni að hann fékk hana til liðs við sig á ný.

Ekki hefur verið gefið út hvenær nýju auglýsingarnar verða birtar, en líklegt þykir að það verði fyrir sumarið fyrir vor-og sumarlínu Chanel.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×