Nýtingarsamningar sem framtíðarleið

Fréttablaðið Aðsendar greinar 22. febrúar 2012 06:00
Sjávarútvegsmál
Jóhann Ársælsson 
fv. alþingismaður
Seinni grein
Sjávarútvegsmál Jóhann Ársælsson fv. alþingismaður Seinni grein
Jóhann Ársælsson skrifar:
Hér fer á eftir tillaga að leið sem er ætlað að skapa jafnræðisgrundvöll fyrir útgerðarfyrirtæki til að þróast í, jafnframt því að þjóðin fái notið eðlilegs arðs af nýtingu auðlindarinnar. Leið sem er ætlað að koma á stöðugu en lifandi og þjálu umhverfi fyrir sjávarútveginn. Þessi tillaga er um aðferð (% og árafjölda ber að taka með fyrirvara) við að ná markmiðum um þjóðareign á auðlindum sjávar á grundvelli „samningaleiðarinnar". Hér er einungis fjallað um langtíma veiðirétt (aflahlutdeildir).

1. Gerðir verði nýtingarsamningar við einstakar útgerðir til 15 ára á grundvelli þeirra aflahlutdeilda sem þær hafa nú.

2. Nýtingarsamningarnir verði afmarkaðir í 15 hluti og verði stysti samningurinn til eins árs en sá lengsti til 15 ára. Ári eftir gildistöku kerfisins koma því fyrstu samningarnir til endurráðstöfunar og stöðugt og jafnt eftir það.

3. Nýir nýtingarsamningar verði afmarkaðir og boðnir til leigu á kvótaþingi til 15 ára.

4. Þeir sem fá nýtingarsamninga við upphaf þessa kerfis skulu fá 85% af því endurgjaldi (meðaltalsverði tegundar á viðkomandi ári) sem fyrir upphafssamningana fæst á kvótaþingi að frádregnu andvirði þeirrar nýtingar sem á sér stað eftir að lengsti upphafssamningurinn rennur út.


Greinargerð
Með þeirri leið sem hér er lýst yrði öllum langtímaveiðirétti komið fyrir í nýtingarsamningum sem endurúthlutað yrði með stöðugu framboði á kvótaþingi. Framtíðarfyrirkomulagið færi strax að virka og tryggði jafnræði í greininni og eðlilega verðmyndun á nýtingarsamningunum.

Gert er ráð fyrir þeirri einföldu aðferð að hverri útgerð verði úthlutað nýtingarsamningum fyrir þeim veiðirétti sem þeir hafa nú. Dæmi: Skip hefur sem svarar 150 tonna kvóta. Það fengi 15 samninga upp á 10 tonn hvern, einn rynni út eftir 15 ár, einn eftir 14 ár o.s.frv. sá stysti eftir eitt ár. Þar með hefur forgangi skipsins til kvótaúthlutunar verið lokið og framvegis verður útgerðarmaðurinn að sækja sér viðbót á kvótaþingi ef hann ætlar að halda í horfinu eða bæta við sig.

Það yrði útgerðarmanni skipsins líklega of erfitt að tapa fimmtánda hluta nýtingarsamninganna árlega og þess vegna er þörf á mótvægisaðgerðum. Einföld leið til að koma til móts við hann væri að hann fengi á aðlögunartímanum (15 árum) mikinn hluta þess andvirðis sem fæst fyrir heimildirnar á kvótaþingi við endurúthlutun þeirra í fyrsta sinn. Hann fengi þess vegna mest þegar stysta samningnum lýkur en ekki neitt þegar þeim lengsta lýkur. Verðið ræðst á kvótaþingi. Það að útgerðarmaðurinn fái ekki allt andvirðið á aðlögunartímanum er nauðsynlegt til að þeir sem eru núna í útgerð geti ekki sprengt upp verðið til að útiloka aðra. Með þessari leið er ekki verið að kaupa kvótann af útgerðinni. Miklu frekar ber að líta á hana sem tímabundið fyrirkomulag sem kemur í stað þeirrar úthlutunar kvótans sem nú gildir. En þessi aðferð gerir kleift að koma á stöðugu og þjálu úthlutunarkerfi strax sem stendur til framtíðar.

Þessi aðferð fjármagnar sig sjálf og gott betur. Ef nýtingarsamningar verða leigðir út til 15 ára rennur í ríkissjóð andvirði þeirra ára sem veiðiheimildirnar ná til eftir 15 árin og auk þeirra 15% af verðinu sem fæst á kvótaþingi fyrir tímann fram að því.

Með þessari aðferð er einföld leið opin til að koma meira til móts við „gömlu" útgerðirnar ef vilji er til sátta, það er að hafa tímann sem útgerðir hafa rétt til andvirðis upphafssamningana lengri en hér er sett fram. Eðlilegt er að fella núgildandi veiðigjald niður þar sem og þegar leiga fyrir nýtingarsamninga kemur í stað þess .

Kostirnir við þessa aðferð er að framtíðarkerfið fer strax að virka, öllum langtíma veiðirétti hefur þá verið breytt í nýtingarsamninga og einn fimmtándi hluti þeirra fer á kvótaþing hvert ár. Einingarnar sem verða leigðar út geta verið hvaða stærð sem er.

Aðferðin leysir endurnýjunarvandann sem annars myndast eftir 15 ár. Hún opnar klárlega fyrir nýliða inn í greinina, tryggir fullt jafnræði og getur rúmað verulegan sveigjanleika.

Skynsamlegt væri að leyfa framsal slíkra nýtingarsamninga a.m.k. upphafssamninganna sem hér er fjallað um en einnig gætu útgerðir í stað þess haft innskilunarrétt á kvótaþing.

Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.

Fleiri fréttir - Aðsendar greinar

Aðsendar greinar 25. maí. 2012 14:00

Norðurlönd á norðurskautssvæðinu

Norðurskautssvæðin hafa flust nær miðju heimsstjórnmálanna og munu fá aukið vægi í framtíð...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

"Nýja háskólasjúkrahúsið – kjarni málsins“

Í aðsendri grein Sighvats Björgvinssonar þ. 21. maí 2012 greinir Sighvatur snöfurmannlega ...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Þrír menn og króna

Árið 2006 tókum við hjónin lán fyrir íbúð. Við áttum von á okkar fyrsta barni og fannst áb...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 17:00

1000 andlit MS - að lesa bók með lopavettlinga á höndum

Hefur þú lesandi góður reynt að lesa/fletta dagblaðinu eða bók með lopavettlinga á höndum?...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Fiskveiðistjórnunin. Allan sannleikann, takk!

Ógnandi mynd er nú þrengt inn í þjóðarsálina með auglýsingum og fyrirsögnum í fjölmiðlum u...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Friðun í herkví sveitarfélaga og bænda

Umhverfisráðherra, Svandís Svavarsdóttir, segir í fréttaskýringu (Friðlýsing náttúrusvæða)...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Um vald forsetans

Margt bendir til að vandi okkar Íslendinga um þessar mundir sé ekki síður menningarlegur e...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Gulrætur og villandi samanburður

Fréttablaðið birti þann 8. maí sl. grein um framleiðslu ísraelska fyrirtækisins Protalix B...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Ekki var Huang gerður strámaður

Í blaðaviðtali í ágúst í fyrra kynnti Hjörleifur Sveinbjörnsson, yfirþýðandi í Þýðingarmið...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Þegar tunnurnar þagna

Ég er þreyttur á að vera reiður. En samt var eigninni minni stolið ásamt öllu mínu sparifé...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Svar við bréfi Sighvats

Í stuttri grein Sighvats Björgvinssonar í Fréttablaðinu 24. maí sl. þar sem hann þakkar fy...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Þú ert stunginn, það er vont og þú færð engan pening

Á hverjum degi láta um 70 manneskjur það yfir sig ganga að víkja í eina klukkustund frá da...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 16:00

Eru Íslendingar vel menntuð þjóð?

Því er iðulega slegið fram sem sönnu að þrátt fyrir bágan efnahag og erfitt ástand hafi Ís...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 11:48

Óskabarn stjórnvalda: þögull forseti

Það þótti ekki tiltökumál þegar að Viðskiptaráð hreykti sér af því fyrir hrun að stjórnvöl...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Takk, Jóhannes

Ég þakka Jóhannesi Gunnarssyni lækni kærlega fyrir svar hans við grein minni um Landspítal...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Er allur þjófnaður í matvöruverslunum tilkynntur til lögreglu?

Undanfarin ár hefur talsmaður matvöruverslunar mætt reglulega á útvarpsstöðina Bylgjuna og...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Stjórnmálasamtökum er gert mishátt undir höfði

Mikilvægt er í samfélagsumræðunni að sanngirni sé gætt í samanburði á sýnileika stjórnmála...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Spurningar áréttaðar

Í grein hér í blaðinu þann 3ja maí síðastliðinn spurði ég forystu Bændasamtaka Íslands, að...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Kynheilbrigðismál – ekki er ráð nema í tíma sé tekið!

Gagnleg umræða um kynheilbrigðismál hefur verið í fjölmiðlum að undanförnu. Rætt hefur ver...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 11:53

Nokkur orð um Vaðlaheiðargöng

Töluverðar deilur hafa átt sér stað undanfarin misseri varðandi fyrirhugaða framkvæmd Vaðl...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Er þjóðin bótaskyld vegna gjafakvótans?

Núverandi kvótahafar hafa ítrekað smjattað á málsókn gegn ríkinu verði kvótinn innkallaður...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Boðið upp í dansinn

Úr þessum penna hefir margsinnis dropið, að sagnfræðingar framtíðar muni dæma harðast allr...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Sagan af brúnu tunnunni

Ég myndi helst vilja eignast hænur til að breyta matarafgöngunum mínum í egg, en get það e...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Við biðjum Skálholti griða

Sagan segir að Gissur Ísleifsson hafi um aldamótin 1100 gefið Skálholtsland með því skilyr...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Sameinum Neytendastofu og talsmann neytenda

Í byrjun árs 2010 boðaði forsætisráðherra að raunhæft væri að fækka 200 stofnunum ríkisins...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Á nútíminn erindi á Bessastaði?

Frá unga aldri hef ég litið á forsetaembættið sem formlegt embætti, þar sem einungis fína ...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Ferðamenn + viðhald ferðastaða = gistináttaskattur?

Skattlagningarform ferðamannaskatts er ekki í samræmi við markmið samhangandi laga þó að h...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 16:50

Ég hafði val

Í nokkur ár hef ég heyrt málefnaleg rök um þróun handboltans sem og innihaldslausar umræðu...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Sátt í Aserbaídsjan

Borgin Shusha tilheyrði Aserbaídsjan fram til 8. maí 1992, þegar hún var hernumin af Armen...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Ljósnet fyrir neytendur

Síminn hefur nýlega sagt frá því að fyrirtækið hafi hafið annan hluta Ljósnetsvæðingar sem...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Til Heiðu

Ekki hafði ég ætlað mér að standa í ritdeilu en í svari Heiðu Kristínar Helgadóttur (Til k...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Aðbúnaður dýra á Íslandi

23-25. des. sl. var viðtal í Fréttatímanum við Árna Stefán Gunnarsson þar sem hann m.a. tj...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Pólitískt hlutverk forsetans

Andstætt því sem stundum er gefið í skyn eru íslensk stjórnlög að meginstefnu skýr um stjó...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Lína lifir!

Á fundi sínum í Ósló 26. apríl sl. samþykktu norrænu mennta- og menningarmálaráðherrarnir ...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Jákvæð samskipti

Einelti er því miður afar alvarlegt samfélagslegt vandamál og sem slíkt er nauðsynlegt að ...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Slegist við strámann á Fjöllum

Merkilegur andskoti hvað við erum léleg að ræða málin. Hér er lenska að virða ekki skoðani...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Öflugt sjúkrahús - kjarni málsins

Um þessar mundir er í nágrannalöndum Íslands víða verið að rífa sjúkrahúsbyggingar sem ekk...  

Meira
Aðsendar greinar 22. maí. 2012 06:00

Flokkur eða hagsmunasamtök?

Meðan hagsmunasamtök berjast fyrir afmarkaðan hóp manna sem á eitthvað sameiginlegt, berja...  

Meira
Aðsendar greinar 22. maí. 2012 06:00

Sérfræðingur að sunnan

Helga Vala Helgadóttir hefur í nýlegu viðtali við Fréttatímann og í grein í Fréttablaðinu ...  

Meira
Aðsendar greinar 22. maí. 2012 06:00

Opið bréf til menntamálaráðherra

Nú í vor sóttu foreldrar þroskaskerts drengs á ellefta ári um skólavist fyrir drenginn í K...  

Meira
Aðsendar greinar 21. maí. 2012 16:10

Stuðningsgrein: Að kveða burt snjóinn

Það blása frískir og fjörugir vorvindar um landið. Æðarfuglinn hreiðrar um sig í Bessastað...  

Meira
Aðsendar greinar 21. maí. 2012 06:00

Nýja háskólasjúkrahúsið – kjarni málsins

Umræðan um risabyggingu nýs spítala í miðbæ Reykjavíkur er hafin. Halldór Laxness orðaði u...  

Meira
Aðsendar greinar 21. maí. 2012 06:00

Ráðherrann og samræðugenin

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra skrifaði einkar athyglisverða grein í Fréttablaðið...  

Meira
Aðsendar greinar 19. maí. 2012 06:00

Forseti og siðferði

Í samfélögum Vesturlanda nú á dögum eru tvær valdamiðstöðvar helstar. Önnur er á vettvangi...  

Meira
Aðsendar greinar 19. maí. 2012 06:00

Hvenær vegur maður að…

Þann 30. apríl sl. voru 15 og 16 ára gamlir hælisumsækjendur dæmdir í 1 mánaðar langt óski...  

Meira
Aðsendar greinar 19. maí. 2012 06:00

Ný atvinnustefna – framkvæmdum hraðað

Aðgerðir ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum hafa skilað áþreifanlegum árangri. Enn dregur ...  

Meira
Aðsendar greinar 18. maí. 2012 12:25

NASA - hugleiðing

Þegar ég las greinina hans Páls Óskars þar sem hann sagði frá því búið væri að segja upp s...  

Meira
Aðsendar greinar 18. maí. 2012 06:00

Forsetinn: Tákn eða afl

Ég held ekki að það sé sérlega eftirsóknarvert að vera forseti. Líklega er þó skárra að ve...  

Meira
Aðsendar greinar 18. maí. 2012 06:00

Þegar ég missi trúna á mannkyninu

Heima í Neskaupstað er eitt af þeim glæsilegu félagsheimilum sem landið státar af. Í því f...  

Meira
Aðsendar greinar 18. maí. 2012 06:00

Verður þá enginn fiskur veiddur meir?

Útgerðarfyrirtæki landsins auglýsa nú grimmt gegn fyrirhuguðum breytingum á fiskveiðistjór...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Lifid
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Aðsendar greinar / Nýtingarsamningar sem framtíðarleið