Viðskipti innlent

Nýting einkabíla afar slök

Guðrún Ansnes skrifar
Þeir Baldur Árnason og Sölvi Melax standa saman að baki Viking car.
Þeir Baldur Árnason og Sölvi Melax standa saman að baki Viking car. vísir/ernir
„Hér er fyrsta haldbæra dæmið um lögleiðingu deilihagkerfis á Íslandi,“ segir Sölvi Melax, maðurinn á bak við fyrirtækið Viking Cars, sem hefur þá sérstöðu í samanburði við aðra þátttakendur í Startup Reykjavík að það er komið á blússandi skrið og fagnaði í vikunni eins árs afmæli.

Sömuleiðis fagnaði Viking Cars nýlega samþykktum lögum á Alþingi sem heimila leigumiðlun á ökutækjum. Viking Cars er vettvangur fyrir bíleigendur til að deila bílum sínum á öruggan hátt með öðrum gegn gjaldi. Með því á að stuðla að fullnýtingu einkabílsins á Íslandi.

Viðskiptafræðingurinn Sölvi segir lélega nýtingu á bílum á Íslandi og ískyggilega hátt verð bílaleiga, sem sennilega sé hæst á Íslandi á heimsmælikvarða, hafi verið uppspretta hugmyndar að markaðstorgi fyrir bíla. „Íslendingar eiga mikið af bílum og nýtingin er mjög léleg. Þegar fólk fer til að mynda í frí, eða nýtir sumarið í að hjóla á milli staða, stendur bíllinn oft ónotaður í innkeyrslunni,“ útskýrir Sölvi. Hann segist hafa brennandi áhuga á að hjálpa fjölskyldum í landinu að skapa viðbótartekjur með bílnum, með aðstoð deilihagkerfisins.

„Þannig er verið að hámarka nýtnina, og fólk getur alveg ákveðið hversu mikið bíllinn er leigður,“ segir Sölvi og bætir við að útleigan sé miðuð við að langtímaleiga séu nokkrir dagar en skammtímaleiga markist við klukkustundir.

„Sé horft til norðurlandanna eru fyrirmyndir vissulega til staðar. En þar er enginn risi. Við viljum verða þessi risi,“ segir Sölvi.

Startup Reykjavík stendur nú sem hæst, þar sem utanumhald fyrir unga frumkvöðla til að koma hugmyndum sínum í verk er i brennidepli. Um ræðir samstarf Arion banka og Klak innovit, en tíu verkefni eru valin ár hvert til að taka. Að loknum undirbúningi, fræðslu og framkvæmd eru verkefnin kynnt fjárfestum.


Tengdar fréttir

Beint úr verkfræði í wasabi

Verkfræðingarnir sem ætla að koma Íslandi á kortið fyrir gott wasabi og leita nú logandi ljósi að hinum fullkomna stað til að hefja ræktun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×