Viðskipti innlent

Nýskráning fólksbíla jókst um 44,1% í september

Sæunn Gísladóttir skrifar
Frá 1. janúar til 30. september varð 41,9% aukning í nýskráningum fólksbíla miðað við fyrra ár.
Frá 1. janúar til 30. september varð 41,9% aukning í nýskráningum fólksbíla miðað við fyrra ár. Vísir/Stefán
Mikil aukning varð í nýskráningum fólksbíla í september. 44,1% aukning varð samanborið við fyrra ár. Alls voru nýskráðir 797 fólksbílar í september. Frá 1. janúar til 30. september varð 41,9% aukning í nýskráningum miðað við fyrra ár, segir í tilkynningu frá Bílgreinasambandinu.

Áframhaldandi aukning er í nýskráningum fólksbíla og bendir allt til þess að nýskráningar  fólksbíla á árinu verði uþb.14.000 stk og er þá þeirri tölu náð sem æskileg er til að halda við eðlilegri endurnýjunarþörf bílaflotans. Hins vegar er stórt gat á markaðnum sem er óuppfyllt vegna afar lélegra ára frá 2008 til 2013 segir í tilkynningunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×