Skoðun

Nýsköpun og velferðartækni

Halldór S. Guðmundsson og Þór G. Þórarinsson skrifar
Velferðartækni og nýsköpun eru leiðandi hugtök í umræðu um velferðarþjónustu samtímans. Nýsköpun og tækni í velferðarþjónustu snertir í raun mörg hugtök sem með ýmsum hætti lýsa tæknilegum lausnum sem hægt er að nota í þágu einstaklinga til að viðhalda eða auka færni sína, samfélagsþátttöku og lífsgæði.

Norðurlöndin hafa á síðustu árum unnið markvisst að athugunum á og umfjöllun um helstu viðfangsefni velferðarþjónustunnar og þær áskoranir sem fyrirsjáanlegar eru á næstu árum og áratugum. Í þeirri greiningarvinnu hefur berlega komið í ljós að takast þarf á við verkefni velferðarþjónustunnar á annan hátt en verið hefur og nýta kosti nútímatækni eins og kostur er.

Forsenda þróunar í nýsköpun og tækni innan velferðarþjónustunnar mun því kjarnast um breytingar á framkvæmd hennar. Hefja þarf markvissa umræðu hér á landi, sem miðar að stefnumörkun og áherslum um hvernig velferðartæknin verði sjálfsagður hluti þjónustunnar. Það þýðir að nýsköpun og tæknilegar lausnir þurfa að vera eðlilegur hluti af heildarferli eða verkfærakistu starfsfólks innan velferðarþjónustunnar. Starfsfólk þarf að hafa yfirsýn, kunnáttu og færni til að leggja mat á hentugar tæknilegar úrlausnir fyrir einstaklinga sem þurfa aðstoð. Tryggja þarf að hlutverk þeirra sem bera ábyrgð á framvindu verkefna á þessu sviði sé skilgreint, bæði hvað varðar útfærslu tæknilausna og innleiðingar.

Notendahópurinn mun stækka

Hugtakið velferðartækni (velferds­teknologi) er ekki einsleitt hugtak heldur er það notað sem samheiti yfir fjölmargar tæknitengdar lausnir. Notendamiðaðar tæknilausnir eru til þess fallnar að aðstoða einstaklinga við not á einu eða fleiri úrræðum sem starfrækt eru á vegum opinberra- eða einkaaðila. Tækni er notuð til þess að styðja við eða auka öryggi við athafnir dagslegs lífs og hreyfanleika innan og utan heimilis sem og til samskipta.

Tæknilausnir hafa hingað til einna helst nýst eldri borgurum, einstaklingum með langvarandi sjúkdóma og fólki með mismunandi tegundir fötlunar. Til framtíðar litið er ljóst að notendahópurinn mun stækka sem kallar á skilvirkari notkun þekkingar og reynslu á sviðinu.

Velferðarráðuneytið hefur nú lagt fram stefnuskjal á sviði velferðartækni í félagsþjónustu. Stefnuskjalið er afrakstur nefndarvinnu og aðkomu fjölmargra aðila og ætti að verða vegvísir og fyrirmynd að frekari útfærslum hjá ríki, sveitarfélögum og einkaaðilum. Flestum er ljóst að mikil tækifæri eru til að efla almennt og notendamiða velferðarþjónustuna með aukinni tækni, nýjum aðferðum og úrræðum, sérstaklega á vettvangi nærþjónustu sveitarfélaga.

Stefnuskjal félags- og húsnæðismálaráðherra, gefur tóninn fyrir spennandi tíma í endurmati velferðarþjónustunnar og þróun nýrrar og tæknilegrar velferðarþjónustu. Kjarnaþættir í þeirri framtíð eru samvinna, markviss undirbúningur sem byggir á þekkingu og lausnaleit, samhliða miðlun reynslu og mati á árangri.




Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×