Innlent

Nýrnaþegi í innlögn á baðherberginu

Kristjana Guðbrandsdóttir skrifar
Óboðleg sjúkravist. „Fæturnir eru þar sem klósettið er og höfuðið er þar sem sturtan er,“ segir Hildur Þóra.
Óboðleg sjúkravist. „Fæturnir eru þar sem klósettið er og höfuðið er þar sem sturtan er,“ segir Hildur Þóra. vísir/vilhelm
Síðustu verkfallslotu fyrir áramót lauk í gær, fimmtudag 11. desember, og enn hefur ekki verið boðað til nýs fundar.

Ástandið á spítölum landsins er víða mjög slæmt. Í gær var nýrnaþegi sem þurfti að vera í einangrun vegna sýkingarhættu, lagður inn á baðherbergi deildar 13-E á Landspítalanum við Hringbraut.

Hildur Þóra Hallbjörnsdóttir, hjúkrunardeildarstjóri á deild 13 E, segir algengt að baðherbergið sé notað fyrir sjúklinga. „Ef allar aðrar stofur eru uppteknar sem við notum í einangrun, þá notum við baðherbergið. Við höfum líka þurft að nota setustofuna og ganginn. Deildin er nýtt 105%. Það er alltaf fullt í hverju einasta plássi og það eru mjög oft sjúklingar á ganginum en ástandið hefur verið sérlega erfitt nú í verkfalli lækna. Þetta getur ekki gengið svona til lengdar,“ segir Hildur Þóra.

Hún segir að starfsfólk Landspítalans reyni að gera vistina eins bærilega og mögulegt er. „En auðvitað er þetta óboðlegt, segir hún og lýsir vistinni: „Fæturnir eru þar sem klósettið er og höfuðið er þar sem sturtan er,“ segir Hildur Þóra.

Ólafur Ólafsson, fyrrverandi landlæknir.vísir/stefán
Í gær fjallaði Fréttablaðið um áhrif verkfallsins á hjartadeild Landspítalans þar sem sjúklingar hafa beðið frá mánudegi eftir nauðsynlegum rannsóknum og aðgerðum. Þá var rætt við Guðna Pál Viktorsson, ungan mann sem lagður var inn á mánudagskvöld vegna einkenna frá hjarta en hefur ekki farið í nauðsynlegar rannsóknir og veit því ekki enn hvað amar að honum.

„Það er svívirðilegt, nú er staðan sú að öryggi sjúklinga er ekki tryggt,“ segir Ólafur Ólafsson, fyrrverandi landlæknir, um fregnir af ástandinu á spítölum landsins nú í vikunni.

„Þetta eru ekki bara nauðsynlegar rannsóknir sem sjúklingar bíða eftir, þær eru í mörgum tilfellum lífsnauðsynlegar,“ ítrekar Ólafur og nefnir sem dæmi gangráðsísetningar og hjartaþræðingar sem aðgerðir sem geti bjargað lífi fólks.

Magnús Pétursson ríkissáttasemjari segir ekki enn komið fram nýtt efni sem gefi tilefni til fundar.

„Auðvitað er verið að vinna í þessu á öllum vígstöðvum. Það finna allir til skyldunnar að leysa þessa deilu, en það er efnið sem ræður því hvort og hvenær er boðað til fundar.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×