Bílar

Nýr Volvo XC40 jepplingur 2018

Finnur Thorlacius skrifar
Gæti Volvo XC40 jepplingurinn litið svona út?
Gæti Volvo XC40 jepplingurinn litið svona út? Autoblog
Nú seljast minni jepplingar einkar vel í heiminum og bílaframleiðendur hafa fjölgað þeim mikið undanfarið. Enn má þó gera ráð fyrir nokkurri fjölgun slíkra bíla. Volvo ætlar ekki að láta sitt eftir liggja í þeim efnum og hyggst kynna þannig jeppling árið 2018 og líklegt þykir að hann muni fá stafina XC40. Yrði hann á stærð við Audi Q3.

Hakan Samuelsson, forstjóri Volvo, segir að það sé forgangsatriði hjá Volvo að setja á markað lítinn jeppling, en hann vildi ekki staðfest hvaða nafn hann myndi bera. Nær öruggt er að þessi bíll verði framleiddur í Ghent í Belgíu, en þar er fyrir smíðaðir V40, V40 Cross Country, S60 og XC60 bílarnir.

Nýr jepplingur yrði byggður á sama undirvagni og þeir. Aðaltromp Volvo um þessar mundir, nýi jeppinn XC90, er hinsvegar smíðaður í Torslanda í Svíþjóð og þar var einnig smíðaður S60 bíllinn.

Þar sem XC90 jeppinn selst svo vel var hætt að framleiða S60 þar svo nýta mætti alla verksmiðjuna við smíði jeppans. Pantanir í hann eru nú orðnar 65.000, en Volvo gerði ráð fyrir að þær yrðu mest 50.000 í ár. Volvo stefnir á sölu 500.000 bílum í ár og 800.000 bílum árið 2020.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×