Viðskipti innlent

Nýr verktaki með lægstu boð í Þeistareykjavirkjun

Kristján Már Unnarsson skrifar
Verktakafyrirtæki í eigu Norðmanna, með íslenskum stjórnendum, virðist ætla að taka íslenska markaðinn með trompi, og átti lægstu boð bæði í stöðvarhús og gufulagnir Þeistareykjavirkjunar. Athygli vekur að einungis tvö tilboð bárust í smíði stöðvarhússins, bæði voru frá fyrirtækjum í erlendri eigu.

Eftir undirbúningsframkvæmdir á Þeistareykjum í fyrrasumar stefnir Landsvirkjun að því að setja allt þar á fullt í vor og er búin að opna tilboð í helstu verkþætti, þar á meðal í stöðvarhúsið. Kostnaðaráætlun hljóðaði upp á nærri 3,9 milljarða króna en aðeins bárust tvö tilboð, það hærra frá ÍAV upp á 4,8 milljarða króna, eða 124 prósent af kostnaðaráætlun. Lægra tilboðið kom frá LNS Saga ehf, upp á 3.973 milljónir króna, eða 103% af kostnaðaráætlun.

Báðir bjóðendur eru alfarið í eigu erlendra verktaka, ÍAV í eigu Marti Holding í Sviss og LNS Saga í eigu Leonhard Nilsen & Sønner í Noregi.

Í gufulagnir fékk Landsvirkjun þrjú boð sem öll voru talsvert yfir 2,3 milljarða kostnaðaráætlun, frá Héðni, ÍAV og LNS Saga, sem einnig þarna átti lægsta boð, upp á nærri 2,7 milljarða króna.

Fyrirhuguð Þeistareykjavirkjun.Grafík/Landsvirkjun.
LNS Saga er á íslenskri kennitölu, stofnað haustið 2012, og með skrifstofur að Hlíðasmára 4 í Kópavogi. Teitur Ingi Valmundsson, aðstoðarframkvæmdastjóri LNS Saga ehf., segir félagið dótturfyrirtæki LNS í Noregi, sem stundi verktakastarfsemi um allan heim.

Íslenska dótturfyrirtækið er þegar komið með tvö stór verk hérlendis, við Hellisheiðarvirkjun og smíði vörugeymslu, og nú bendir flest til að það verði stærsti verktakinn á Þeistareykjum.

„Við erum spenntir. Ef af verður, þá er allt tilbúið,“ segir Teitur Ingi. „Við erum með vanan mannskap sem er búinn að vera í mörgum virkjunum og komið víða við. Þannig að það eru allir tilbúnir hér.“

Allir lykilstarfsmenn LNS Saga eru Íslendingar sem koma frá öðrum íslenskum verktakafyrirtækjum. Teitur Ingi segir marga hafa starfað lengi erlendis og einnig innanlands.

„Við erum með milli 30 og 40 tæknimenntaða starfsmenn sem hafa komið við bara í öllum stærri framkvæmdum Íslendinga síðustu áratugina,“ segir Teitur Ingi Valmundsson.


Tengdar fréttir

Framkvæmdir komast vonandi á fullt í sumar

Forstjóri Landsvirkjunar segir óhjákvæmilegt að framkvæmdir í Þingeyjarsýslum tefjist vegna rannsóknar Eftirlitsstofnunar EFTA á því hvort ólögmæt ríkisaðstoð felist í samningum vegna kísilvers á Húsavík.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×