Íslenski boltinn

Nýr þjálfari KR kynntur á mánudaginn

Hörður Magnússon skrifar
KR er eina félagið í Pepsideild karla í fótbolta sem ekki hefur gengið frá ráðningu þjálfara. Kristinn Kjærnsted formaður knattspyrnudeildar staðfesti þó við fréttastofu í dag að félagið myndi tilkynna um nýjan þjálfara á mánudag.

Kristinn vildi ekki svara því hvort KR-ingar væru að bíða eftir úrslitum þingkosninganna á laugardag. Hann væri tilbúinn að útskýra málið eftir helgi.

Willum Þór Þórsson er í baráttusæti fyrir Framsóknarflokkinn og alls ekki öruggt að hann nái  á þing samkvæmt nýjustu skoðanakönnunum.  Willum Þór tók við við vesturbæjarliðinu í sumar eftir dapurt gengi og tryggði Evrópusæti. Fleiri nöfn hafa ekki verið nefnd til sögunnar en fram hefur komið áhugi erlendra þjálfara á stöðunni.

Það verður því að teljast afar líklegt að Willum verði ráðinn á mánudag burtséð frá úrslitum kosninga. KR-ingar hafa verið að vinna að leikmannamálum.

Fyrirliði Breiðabliks, hægri bakvörðurinn Arnór Sveinn Aðalsteinsson, hefur sterklega verið orðaður við félagið en nokkuð ljóst þykir að hann yfirgefi Kópavogsliðið.

Annars hefur verið rólegt á þjálfaramarkaðnum. Ef við lítum á liðin sem leika í Pepsideildinni á næsta ári. Heimir Guðjónsson gerði nýjan tveggja ára samning á dögunum við Íslandsmeistarana. Rúnar Pall stýrir Stjörnunni áfram. KR staðan skýrist á mánudag.

Ágúst Gylfason verður áfram hjá Fjölni sömuleiðis Óli Jó hjá Val, Arnar Grétarsson hjá Blikum, Milos hjá Víkingum Reykjavík og Gulli Jóns hjá Skagamönnum.

Kristján Guðmundsson stýrir Eyjaskútunni en væringar hafa verið í stjórn ÍBV að undanförnu. Það er erfitt að hugsa sér Víking Ólafsvík án Ejubs Purisevic hann er klár og síðan verða þeir Srjdan Tufegzdic KA og Óli Stefán Flóventsson áfram hjá nýliðum KA og Grindavíkur.

Alla fréttina má sjá í spilaranum hér að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×