Nýr stjórnarsáttmáli mjög framsóknarlegur Helga Arnardóttir skrifar 23. maí 2013 19:51
Nýr stjórnarsáttmáli er þjóðlegri og ber meiri keim af eldri hugmyndafræði Framsóknarflokksins en Sjálfstæðisflokksins að mati sagnfræðings. Stjórnarsáttmáli síðustu ríkisstjórnar hafi verið með ítarlegri og útfærðari verkefnalista en sáttmáli nýrrar ríkisstjórnar. Stjórnarandstaðan gagnrýndi stjórnarsáttmála ríkistjórnarinnar í gær og sagði hann frekar almennt orðaðan og lítið væri um útfærslur. Sáttmálinn telur tíu blaðsíður en stjórnarsáttmáli síðustu ríkisstjórnar taldi 17 blaðsíður og var sá lengsti sem sést hafði. Ragnheiður Kristjánsdóttir aðjúnkt í sagnfræði við Háskóla Íslands segir sáttmálann frá 2009 hafa verið ólíkan sáttmálum fyrri ríkisstjórna sem hefðu verið styttri og frekar almennt orðaðir. „Þar er sett fram frekar markviss samstarfsáætlun eða verkefnaáætlun í rauninni og ber merki þess að vera svona langur tossalisti ríkistjórnarinnar sem hún síðan held ég hafi farið markvisst eftir út kjörtímabilið. Það er mjög óvenjulegt og hefur ekki verið áður,“ segir Ragnheiður Kristjánsdóttir, aðjúnkt í sagnfræði við Háskóla Íslands. Nýr stjórnarsáttmáli sé hins vegar í takt við eldri sáttmála. „Plaggið sem við fengum að sjá í gær er ítarlegt. Það er lengra heldur en fyrri stjórnarsáttmálar en hins vegar ber það ekki alveg merki þess að vera verkefnaáætlun í sama skilningi og plaggið frá 2009. Það er svona minna um nákvæmlega tilgreindar aðgerðir sem á að ráðast í á einhverjum tilteknum tíma,“ segir hún. Nokkur atriði séu þó afgerandi í nýjum sáttmála og það er til dæmis að afturkalla umdeildar ákvarðanir síðustu ríkisstjórnar eins og aðildarviðræður og veiðigjaldið. Nýr stjórnarsáttmáli sé einnig ólíkur þeim frá 2009 í hugmyndafræði og áherslum. „Allavega framan af plagginu þar sem meira er um almennt orðalag, þá finnst mér þetta vera mjög Framsóknarlegur sáttmáli. Mér finnst ég ekki sjá svona stefnu Sjálfstæðisflokksins jafn skýrt og stefnu Framsóknarflokksins. Í raun og veru eru þetta svona frekar gamaldags gildi sem er lagt upp með,“ segir Ragnheiður og tekur sem dæmi setningar á borð við: Íslensk þjóðmenning verður í hávegum höfð - Áhersla verður lögð á málvernd, vernd sögulegra minja og skráningu Íslandssögunnar. Aukin verður virðing fyrir merkri sögu landsins, menningu og tungumálinu. „Það er svona meira í ætt við það sem maður sá hjá stjórnmálamönnum á tuttugustu öldinni og jafnvel dálítið langt aftur á tuttugustu öldinni. Mér finnst þessi Framsóknarflokkur sem þarna talar ekki minna á rödd Halldórs Ásgrímssonar en þá var Framsóknarflokkurinn meiri frjálshyggjuflokkur og lagði áherslu á erlent samstarf við Evrópu og svo framvegis. Þetta er frekar eldri Framsóknarflokkur sem talar núna,“ bætir hún við. Þá finnst Ragnheiði athyglisvert að á fyrstu blaðsíðu stjórnarsáttmálans sé minnst á ungmennafélög og mikilvægi þeirra sem ekki oft hafi verið minnst á í stjórnarsáttmálum. Nánar tiltekið segir í stjórnarsáttmálanum: Æskilegt er að stjórnvöld viðurkenni í auknum mæli í verki mikilvægi samtaka á borð við hjálparsveitir, ungmennafélög, íþróttafélög, forvarna- og hjálparsamtök og önnur frjáls félagasamtök sem efla og bæta íslenskt samfélag. „Mér finnst það benda á ímynd Framsóknarflokksins sem þeir virðast vera að tengja við miklu meira núna en áður því í upphafi tuttugustu aldar þegar Framsóknarflokkurinn var stofnaður var hann mjög tengdur ungmennafélagshreyfingunni." Ragnheiður segir það einnig hafa komið skýrt fram þegar Héraðsskólinn að Laugarvatni var valinn til að kynna stjórnarsáttmálann en Jónas frá Hriflu einn helsti forkólfur Framsóknarflokksins beitti sér fyrir byggingu skólans á sínum tíma.
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent Marius látinn laus Erlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent Séra Guðni Már kveður Ísland Innlent Fleiri fréttir Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi „Ofurnjósnaskip Pútíns“ í íslenskri lögsögu Framtíð moskítóflugunnar á Íslandi óljós en ræðst á næstu vikum Sjá meira