Lífið

Nýr spurningaþáttur með Nilla fer í loftið á fimmtudag

Spéfuglinn Nilli byrjar nú í vikunni með spurningaþáttinn Hvert í ósköpunum er svarið? hér á Vísi og sjónvarpsstöðinni Bravó.

Þar etur hann saman keppendum úr framhaldsskólum landsins í óhefðbundinni keppni þar sem spurningarnar eru úr hinni skrýtnu veröld Nilla.

Fyrsti þáttur fer í loftið á fimmtudagskvöld. Í tilefni af því hitti Nilli nokkur vel valin gáfumenni til að hita sig upp, þ.á.m. Hannes Hólmstein. Þeir félagar náðu afar vel saman eins og sjá má hér að ofan.







Fleiri fréttir

Sjá meira


×