Nýr spítali – já takk!

Fréttablaðið Aðsendar greinar 21. febrúar 2012 06:00
Nýr Landspítali
Hildur Helgadóttir
innlagnastjóri Landspítala
Nýr Landspítali Hildur Helgadóttir innlagnastjóri Landspítala
Á undanförnum dögum og vikum hefur töluvert verið rætt og ritað um nýjan Landspítala við Hringbraut. Eins og við er að búast eru ekki allir einhuga um þetta verkefni og steytir þar á ýmsu s.s. fjármögnun, staðsetningu, umferð, aðgengi, bílastæðum og skipulagi byggðar í borginni. Það er mikilvægt að umræðan sé lífleg og þar séu allir þættir skoðaðir, skeggræddir og til lykta leiddir. Þannig tryggjum við bestu mögulegu útkomu fyrir okkur sjálf, en þjóðin er helsti hagsmunaaðili að nýjum, vel búnum og vel mönnuðum spítala.

Staðsetningin er löngu ákveðin og henni verður ekki breytt héðan af, til þess er undirbúningsvinnan komin of langt. Við höfum ekki efni á að byggja ekki nýjan spítala, hann er okkar brýnasta forgangsmál. Núverandi húsakostur er genginn sér til húðar, hann hefur þjónað vel en nú er mál að linni. Sem innlagnastjóri Landspítala í tæp fimm ár fæst ég á hverjum degi við flókin úrlausnarefni sem mörg hver verða mun auðveldari á nýjum spítala. Þar vegur þyngst að þörfin fyrir einbýli með aðgengi að sér salerni hefur snaraukist á örfáum árum. Nú eru aðeins örfá einbýli á hverri legudeild og enn eru í notkun sjúkrastofur fyrir sex einstaklinga. Ástæðurnar fyrir vaxandi þörf fyrir einbýli eru nokkrar og eru þær tíundaðar hér til fróðleiks – listinn er þó ekki tæmandi:

1. Sjúklingar sem koma erlendis frá og hafa verið á sjúkrahúsi þar á síðustu sex mánuðum þurfa einangrun vegna svonefndrar MÓSA varúðar. Í stuttu máli erum við að verjast bakteríum sem eru ónæmar fyrir öllum helstu sýklalyfjum og landlægar á mörgum sjúkrahúsum erlendis. Einangrun er aðeins aflétt ef sýni eru neikvæð, en ræktun getur tekið 2-4 daga.

2. Fjöldi fólks með langvinn heilsufarsvandamál ber í sér bakteríu sem myndar hvata (ESBL) sem brjóta niður lyf í mikilvægasta sýklalyfjaflokknum, en þetta fólk þarf einbýli og sér salerni í hvert sinn sem það leggst inn á sjúkrahús.

3. Nokkur hópur sjúklinga með langvinna sjúkdóma ber í sér ónæma bakteríu sem nefnist VRE, en þeir þurfa einbýli og sér salerni þegar þeir leggjast inn á sjúkrahús.

4. Á hverju ári gengur yfir faraldur svonefndrar Nórósýkingar sem er bráðsmitandi iðrasýking. Hún fer eins og eldur í sinu um sjúkradeildir þar sem fjölbýli eru og fólk deilir salerni. Þeir sem veikjast af Nóró þurfa einbýli og sér salerni á meðan veikindin vara og í a.m.k. 48 tíma eftir að einkenni eru gengin yfir.

5. Inflúensa gengur á hverjum vetri – af mismiklum þunga. Þeir sem leggjast inn og eru grunaðir um inflúensu þurfa einbýli og sér salerni í 48 tíma eftir að gjöf inflúensulyfja hefst.

6. Upp geta komið faraldrar smitsjúkdóma sem krefjast einangrunar sjúklinga á einbýli með sér salerni s.s. svínainflúensa og mislingar.

7. Sjúklingum sem fá sýklalyf er hætt við að fá iðrasýkingu sem nefnist CDTA. Þeir þurfa einbýli og sér salerni á meðan hún gengur yfir.

8. Ónæmisbældir einstaklingar, t.d. líffæraþegar og fólk í þungum lyfjameðferðum vegna blóðsjúkdóma, þurfa að vera í svonefndri varnareinangrun á einbýli með sér salerni, stundum í margar vikur.

9. Sjúklingar sem eru mjög mikið veikir og/eða deyjandi þurfa einbýli.

10. Veik börn þurfa í flestum tilfellum einbýli.

11. Sjúklingar með bráðarugl og atferlistruflanir þurfa einbýli.

12. Sjúklingar með alvarlega geðsjúkdóma þurfa oftast einbýli.

Listinn er lengri og í rauninni er það þannig að langflestir þeirra sem þurfa að dvelja á sjúkrahúsi nú á tímum þurfa á einbýli að halda. Af þessu má glögglega sjá að skipulag þeirra sjúkradeilda sem Landspítalinn hefur yfir að ráða er ófullnægjandi nú á árinu 2012. Á nútíma sjúkrahúsi þurfa allar sjúkrastofur að vera einbýli með salerni. Þar ráða sýkingavarnasjónarmið og sú staðreynd að nú á dögum liggur fólk ekki á spítala nema það þurfi sérhæfða sjúkrahúsþjónustu og geti sjúkdómsins/aðgerðarinnar eða færni sinnar vegna ekki verið heima.

Á nýja spítalanum mun aðstaðan uppfylla þessar kröfur og þar verður hægt að veita mun betri og öruggari þjónustu en nú er mögulegt. Starfsfólk Landspítala leggur sig alltaf í líma við að veita eins góða þjónustu og mögulegt er en húsnæðið, tækjabúnaðurinn og önnur aðstaða er takmarkandi þáttur. Þegar sjúklingur sem nauðsynlega þarf einbýli leggst inn á spítalann getur þurft að grípa til flókinna ráðstafana sem fela í sér flutning annarra sjúklinga fram á gang, á aðrar deildir eða jafnvel milli húsa.

Undanfarin ár höfum við hvað eftir annað lent í því að þurfa að loka heilu legudeildunum um lengri eða skemmri tíma vegna sýkinga. Slíkar uppákomur riðla flóknu og viðkvæmu skipulagi spítalans þar sem hvert púsl þarf að vera á sínum stað til að kerfið virki fyrir sjúklingana og þjónustan sé góð og örugg. Þessar uppákomur kosta ómælda fjármuni, bæði vegna dýrra sýklaræktana, sótthreinsunar, þrifa, frestunar skurðaðgerða og þess að nota þarf mun dýrari sýklalyf en ella.

Það verður ekki degi of snemmt að við flytjum í nýjan spítala. Nú þurfum við að snúa bökum saman sem aldrei fyrr og sýna hvað við getum – Landspítali er hornsteinn heilbrigðiskerfisins og öryggisnet þjóðarinnar. Nýr Landspítali er nauðsyn.

Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.

Fleiri fréttir - Aðsendar greinar

Aðsendar greinar 25. maí. 2012 14:00

Norðurlönd á norðurskautssvæðinu

Norðurskautssvæðin hafa flust nær miðju heimsstjórnmálanna og munu fá aukið vægi í framtíð...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

"Nýja háskólasjúkrahúsið – kjarni málsins“

Í aðsendri grein Sighvats Björgvinssonar þ. 21. maí 2012 greinir Sighvatur snöfurmannlega ...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Þrír menn og króna

Árið 2006 tókum við hjónin lán fyrir íbúð. Við áttum von á okkar fyrsta barni og fannst áb...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 17:00

1000 andlit MS - að lesa bók með lopavettlinga á höndum

Hefur þú lesandi góður reynt að lesa/fletta dagblaðinu eða bók með lopavettlinga á höndum?...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Fiskveiðistjórnunin. Allan sannleikann, takk!

Ógnandi mynd er nú þrengt inn í þjóðarsálina með auglýsingum og fyrirsögnum í fjölmiðlum u...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Friðun í herkví sveitarfélaga og bænda

Umhverfisráðherra, Svandís Svavarsdóttir, segir í fréttaskýringu (Friðlýsing náttúrusvæða)...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Um vald forsetans

Margt bendir til að vandi okkar Íslendinga um þessar mundir sé ekki síður menningarlegur e...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Gulrætur og villandi samanburður

Fréttablaðið birti þann 8. maí sl. grein um framleiðslu ísraelska fyrirtækisins Protalix B...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Ekki var Huang gerður strámaður

Í blaðaviðtali í ágúst í fyrra kynnti Hjörleifur Sveinbjörnsson, yfirþýðandi í Þýðingarmið...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Þegar tunnurnar þagna

Ég er þreyttur á að vera reiður. En samt var eigninni minni stolið ásamt öllu mínu sparifé...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Svar við bréfi Sighvats

Í stuttri grein Sighvats Björgvinssonar í Fréttablaðinu 24. maí sl. þar sem hann þakkar fy...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Þú ert stunginn, það er vont og þú færð engan pening

Á hverjum degi láta um 70 manneskjur það yfir sig ganga að víkja í eina klukkustund frá da...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 16:00

Eru Íslendingar vel menntuð þjóð?

Því er iðulega slegið fram sem sönnu að þrátt fyrir bágan efnahag og erfitt ástand hafi Ís...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 11:48

Óskabarn stjórnvalda: þögull forseti

Það þótti ekki tiltökumál þegar að Viðskiptaráð hreykti sér af því fyrir hrun að stjórnvöl...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Takk, Jóhannes

Ég þakka Jóhannesi Gunnarssyni lækni kærlega fyrir svar hans við grein minni um Landspítal...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Er allur þjófnaður í matvöruverslunum tilkynntur til lögreglu?

Undanfarin ár hefur talsmaður matvöruverslunar mætt reglulega á útvarpsstöðina Bylgjuna og...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Stjórnmálasamtökum er gert mishátt undir höfði

Mikilvægt er í samfélagsumræðunni að sanngirni sé gætt í samanburði á sýnileika stjórnmála...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Spurningar áréttaðar

Í grein hér í blaðinu þann 3ja maí síðastliðinn spurði ég forystu Bændasamtaka Íslands, að...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Kynheilbrigðismál – ekki er ráð nema í tíma sé tekið!

Gagnleg umræða um kynheilbrigðismál hefur verið í fjölmiðlum að undanförnu. Rætt hefur ver...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 11:53

Nokkur orð um Vaðlaheiðargöng

Töluverðar deilur hafa átt sér stað undanfarin misseri varðandi fyrirhugaða framkvæmd Vaðl...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Er þjóðin bótaskyld vegna gjafakvótans?

Núverandi kvótahafar hafa ítrekað smjattað á málsókn gegn ríkinu verði kvótinn innkallaður...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Boðið upp í dansinn

Úr þessum penna hefir margsinnis dropið, að sagnfræðingar framtíðar muni dæma harðast allr...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Sagan af brúnu tunnunni

Ég myndi helst vilja eignast hænur til að breyta matarafgöngunum mínum í egg, en get það e...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Við biðjum Skálholti griða

Sagan segir að Gissur Ísleifsson hafi um aldamótin 1100 gefið Skálholtsland með því skilyr...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Sameinum Neytendastofu og talsmann neytenda

Í byrjun árs 2010 boðaði forsætisráðherra að raunhæft væri að fækka 200 stofnunum ríkisins...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Á nútíminn erindi á Bessastaði?

Frá unga aldri hef ég litið á forsetaembættið sem formlegt embætti, þar sem einungis fína ...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Ferðamenn + viðhald ferðastaða = gistináttaskattur?

Skattlagningarform ferðamannaskatts er ekki í samræmi við markmið samhangandi laga þó að h...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 16:50

Ég hafði val

Í nokkur ár hef ég heyrt málefnaleg rök um þróun handboltans sem og innihaldslausar umræðu...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Sátt í Aserbaídsjan

Borgin Shusha tilheyrði Aserbaídsjan fram til 8. maí 1992, þegar hún var hernumin af Armen...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Ljósnet fyrir neytendur

Síminn hefur nýlega sagt frá því að fyrirtækið hafi hafið annan hluta Ljósnetsvæðingar sem...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Til Heiðu

Ekki hafði ég ætlað mér að standa í ritdeilu en í svari Heiðu Kristínar Helgadóttur (Til k...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Aðbúnaður dýra á Íslandi

23-25. des. sl. var viðtal í Fréttatímanum við Árna Stefán Gunnarsson þar sem hann m.a. tj...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Pólitískt hlutverk forsetans

Andstætt því sem stundum er gefið í skyn eru íslensk stjórnlög að meginstefnu skýr um stjó...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Lína lifir!

Á fundi sínum í Ósló 26. apríl sl. samþykktu norrænu mennta- og menningarmálaráðherrarnir ...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Jákvæð samskipti

Einelti er því miður afar alvarlegt samfélagslegt vandamál og sem slíkt er nauðsynlegt að ...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Slegist við strámann á Fjöllum

Merkilegur andskoti hvað við erum léleg að ræða málin. Hér er lenska að virða ekki skoðani...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Öflugt sjúkrahús - kjarni málsins

Um þessar mundir er í nágrannalöndum Íslands víða verið að rífa sjúkrahúsbyggingar sem ekk...  

Meira
Aðsendar greinar 22. maí. 2012 06:00

Flokkur eða hagsmunasamtök?

Meðan hagsmunasamtök berjast fyrir afmarkaðan hóp manna sem á eitthvað sameiginlegt, berja...  

Meira
Aðsendar greinar 22. maí. 2012 06:00

Sérfræðingur að sunnan

Helga Vala Helgadóttir hefur í nýlegu viðtali við Fréttatímann og í grein í Fréttablaðinu ...  

Meira
Aðsendar greinar 22. maí. 2012 06:00

Opið bréf til menntamálaráðherra

Nú í vor sóttu foreldrar þroskaskerts drengs á ellefta ári um skólavist fyrir drenginn í K...  

Meira
Aðsendar greinar 21. maí. 2012 16:10

Stuðningsgrein: Að kveða burt snjóinn

Það blása frískir og fjörugir vorvindar um landið. Æðarfuglinn hreiðrar um sig í Bessastað...  

Meira
Aðsendar greinar 21. maí. 2012 06:00

Nýja háskólasjúkrahúsið – kjarni málsins

Umræðan um risabyggingu nýs spítala í miðbæ Reykjavíkur er hafin. Halldór Laxness orðaði u...  

Meira
Aðsendar greinar 21. maí. 2012 06:00

Ráðherrann og samræðugenin

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra skrifaði einkar athyglisverða grein í Fréttablaðið...  

Meira
Aðsendar greinar 19. maí. 2012 06:00

Forseti og siðferði

Í samfélögum Vesturlanda nú á dögum eru tvær valdamiðstöðvar helstar. Önnur er á vettvangi...  

Meira
Aðsendar greinar 19. maí. 2012 06:00

Hvenær vegur maður að…

Þann 30. apríl sl. voru 15 og 16 ára gamlir hælisumsækjendur dæmdir í 1 mánaðar langt óski...  

Meira
Aðsendar greinar 19. maí. 2012 06:00

Ný atvinnustefna – framkvæmdum hraðað

Aðgerðir ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum hafa skilað áþreifanlegum árangri. Enn dregur ...  

Meira
Aðsendar greinar 18. maí. 2012 12:25

NASA - hugleiðing

Þegar ég las greinina hans Páls Óskars þar sem hann sagði frá því búið væri að segja upp s...  

Meira
Aðsendar greinar 18. maí. 2012 06:00

Forsetinn: Tákn eða afl

Ég held ekki að það sé sérlega eftirsóknarvert að vera forseti. Líklega er þó skárra að ve...  

Meira
Aðsendar greinar 18. maí. 2012 06:00

Þegar ég missi trúna á mannkyninu

Heima í Neskaupstað er eitt af þeim glæsilegu félagsheimilum sem landið státar af. Í því f...  

Meira
Aðsendar greinar 18. maí. 2012 06:00

Verður þá enginn fiskur veiddur meir?

Útgerðarfyrirtæki landsins auglýsa nú grimmt gegn fyrirhuguðum breytingum á fiskveiðistjór...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Lifid
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Aðsendar greinar / Nýr spítali – já takk!