Erlent

Nýr samskiptastjóri kominn í Hvíta húsið tímabundið

Kjartan Kjartansson skrifar
Hicks með Stephen Bannon, aðalráðgjafa Trump. Sögur um að Bannon verði rekinn hafa gengið fjöllunum hærra síðustu daga.
Hicks með Stephen Bannon, aðalráðgjafa Trump. Sögur um að Bannon verði rekinn hafa gengið fjöllunum hærra síðustu daga. Vísir/AFP
Hope Hicks, náinn ráðgjafi Donalds Trump Bandaríkjaforseta, hefur verið ráðin í starf samskiptastjóra Hvíta hússins tímabundið. Forveri hennar, Anthony Scaramucci, entist aðeins tíu daga í starfi.

Hicks er 28 ára gömul og er sögð einn hollasti aðstoðarmaður forsetans, að sögn Washington Post. Hún var blaðafulltrúi Trump í kosningabaráttunni og tengist Ivönku, dóttur Trump, og Jared Kushner eiginmanni hennar nánum böndum.

Hún er sögð munu gegn starfi samskiptastjóra tímabundið og aðstoða við leit að varanlegum eftirmanni Scaramucci.

Ljóst er að Hicks bíður töluvert verk. Trump liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli sín um samkomu hvítra þjóðernissinna í Charlottesville um helgina sem lauk með dauða mótmælenda þeirra. Forsetinn kenndi bæði þjóðernisöfgamönnum og mótmælendum þeirra um ofbeldið.

Háttsettir repúblikanar eru á meðal þeirra sem hafa sagt ummæli Trump óásættanleg.

Frekari breytingar mögulegar

Skammt er síðan Trump skipti út starfsmanna- og samskiptastjórum Hvíta hússins og Sean Spicer, blaðafulltrúi hans, steig til hliðar. Fjölmiðlar hafa verið fullir af fréttum um að starf Stephens Bannon, aðalráðgjafa Trump, sé nú í hættu. Honum sé kennt um að hafa sveigt forsetann í átt að hvítri þjóðernishyggju.

Trump sagði sjálfur á blaðamannafundinum alræmda í gær að Bannon væri „ekki rasisti“ en að koma þyrfti í ljós hvað yrði um hann.


Tengdar fréttir

Repúblikanar andæfa fordómum og Trump forseta

Margir háttsettir repúblikanar hafa gagnrýnt furðuleg ummæli Donalds Trump forseta um óeirðirnar í Charlottesville í gær. Helstu leiðtogar þeirra hafa þó hikað við að beina spjótum sínum beint að forsetanum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×