Viðskipti innlent

Nýr regluvörður og fjárfestatengill hjá Reginn hf.

Stefán Árni Pálsson skrifar
Björg Jóhannesdóttir.
Björg Jóhannesdóttir. mynd/aðsend
Björg Jóhannesdóttir hefur verið ráðin lögfræðingur fasteignafélagsins Reginn hf. og mun jafnframt verða nýr regluvörður félagsins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fasteignafélaginu.

Er þetta ráðstöfun af hálfu félagsins í kjölfar aukinna umsvifa hjá félaginu samhliða stækkun og aukinnar áherslu á að styrkja og auka sjálfstæði í regluvörslu með löglærðum aðila.

Björg mun jafnframt verða ritari stjórnar og fjárfestatengill félagsins.

Björg er með embættispróf í lögfræði frá lagadeild Háskóla Íslands og hlaut málflutningsréttindi fyrir héraðsdómi árið 2007. Þá lauk Björg LL.M gráðu frá háskólanum í Edinborg árið 2013. Björg starfaði áður hjá Slitastjórn Kaupþings hf. og á lögfræðisviði Kaupþings banka hf. frá árinu 2008. Þá starfaði Björg sem aðstoðarmaður dómara við Héraðsdóm Reykjaness á árunum 2006 til 2008. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×