Leikjavísir

Nýr Red Dead Redemption í framleiðslu?

Samúel Karl Ólason skrifar
Myndin sem Rockstar birti í dag.
Myndin sem Rockstar birti í dag.
Tölvuleikjafyrirtækið Rockstar virðist ætla að fylgja Grand Theft Auto 5 eftir með nýjum Red Dead Redemption leik. Síðustu tvo daga hefur fyrirtækið valdið miklum usla í netheimum með óljósum vísbendingum um nýjan leik.

Fyrirtækið birti merki sitt á rauðum bakgrunni á Twitter í gær, en sú mynd kom miklu umtali af stað. Nú í dag birti Rockstar mynd af sjö mönnum, sem líta út fyrir að vera kúrekar, á rauðum bakgrunni.

Myndin var einnig birt á vefsvæði Rockstar.

Red Dead Redemption kom út árið 2010 fyrir PS3 og Xbox 360. Hann fjallaði um kúrekann John Marston og uppgjör hans við gamla vini sína, sem voru með honum í klíku. Hann hefur verið nefndur sem besti leikur þessarra leikjatölva og er í sjötta sæti á Metacritic.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×