Innlent

Nýr lágpunktur í íslenskri stjórnmálaumræðu

Gunnar Atli Gunnarsson skrifar
VISIR/DANÍEL
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins og forsætisráðherra, kom víða við í stefnuræðu sinni á miðstjórnarfundi flokksins nú síðdegis. Hann sagði ríkisstjórnina hafa náð ótrúlegum árangri og þorað að takast á við stóru málin.

„Það var ótrúlegt að heyra viðbrögð stjórnarandstöðunnar við þessu eftir allt saman. Ég hefði ekki trúað því að þau myndu greiða atkvæði gegn þessu. Sama fólk og var algjörlega mótfallið því að skattlegja fjármálafyrirtækja og færa niður skuldir heimilanna en vildi skattleggja heimilin og greiða niður skuldir fallinna fjármálafyrirtækja,“ sagði Sigmundur Davíð.

Hann sagði það stefnu ríkisstjórnarinnar að skuldastaða Íslands verði sú besta í Evrópu árið 2020 og að íslenska hagkerfið verði það heilbrigðasta í Evrópu. Þá vék hann orðum að hugsanlegri komu bandarísku verslunarkeðjunnar Costco hingað til lands en hann sagði umræðuna á köflum vera fáránlega.

„Ég bara spyr. Hverjir eru gamaldags og afturhaldssamir. Þeir sem vilja fylgja þróun í því að búa til og verja heilnæma og góða matvöru. Eða þeir sem vilja allt slíkt lönd og leið og telja það raunar bara einangrunarhyggju að leyfa sér að halda því fram að það eigi ekki að flytja inn eins mikið sterakjöt og menn vilja.“

Þá gagnrýndi hann harðlega þá umræðu sem kom upp í kjölfar ummæla oddvita Framsóknarflokksins í Reykjavík þess efnis að afturkalla ætti úthlutun á lóð til Félags múslima á Íslandi. Flokkurinn hafi verið kenndur við popúlisma og kynþáttahyggju.

„Að menn skuli nýta sér slíkt mál, í pólitískum tilgangi til að koma höggi á andstæðinga, er nýr lágpunktur í stjórnmálaumræðu seinni tíma,“ sagði Sigmundur Davíð.

                                 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×