Nýr kennsluvefur í skák kominn í loftið Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 5. desember 2016 15:31 Vonast er til þess að vefurinn auki áhuga á skáklistinni. Vísir/Anton Brink
Friðrik Ólafsson stórmeistari í skák opnaði í dag formlega nýja vefsíðu, skakkennsla.is, en á henni er að finna fjölbreytt úrval kennslumyndbanda í skák. Markmiðið með gerð vefsíðunnar er að auðvelda aðgengi að náms- og kynningarefni á íslensku um skák sem einkum nýtist börnum sem eru að læra að tefla, skákkennurum í skólum og foreldrum sem vilja hjálpa börnum sínum með að verða betri skákmenn. Á vefnum er að finna rúmlega 120 kennslumyndbönd bæði fyrir byrjendur og lengra komna. Vefsíðan er samstarfsverkefni Skáksambands Íslands og GAMMA Capital Management og er ætlunin að fjölga myndböndunum eftir því sem tíminn líður. Skáksambandið og GAMMA vonast til að verkefnið verði íslensku skáklífi mikil lyftistöng í framtíðinni og muni gagnast börnum vel sem kennsluefni í skák. Kennsluefnið skiptist í megingreinar skáklistarinnar; miðtöfl, endatöfl og byrjanir, auk þess er frægum skákum úr skáksögunni gerð góð skil ásamt myndböndum sem fjalla um feril íslensku stórmeistaranna.Friðrik teflir.Vísir/Anton BrinkVefsíðan var formlega tekin í notkun í Rimaskóla í dag og við það tilefni var spilað myndband um feril eins ástsælasta skákmanns landsins, Friðriks Ólafssonar. Friðrik varð íslandsmeistari í skák aðeins 17 ára gamall og Norðurlandameistari ári síðar. Hann varð stórmeistari í skák fyrstur Íslendingaa árið 1958, þá 23 ára gamall. „Það er ánægjulegt að vönduð kennsluvefsíða um skák fyrir börn sé komin í gagnið. Það er von mín að vefsíðan verði vel sótt og hafi jákvæð áhrif á skákiðkun barna, foreldra og kennara. Skák er einstaklega skemmtileg, eflir rökhugsun, einbeitingu og sköpunargáfu sem styrkir jafnframt námsgetu barna,“ sagði Friðrik. Gunnar Björnsson forseti Skáksambands Íslands sagði jafnframt við þetta tilefni að vefurinn kæmi á góðum tíma þar sem skákhreyfingin hefur verið vör við stóraukinn skákáhuga eftir sigur Magnúsar Carlsen í heimsmeistaraeinvíginu í New York. „Það er ánægjulegt að geta stutt við svona verðugt verkefni, við hjá GAMMA vonum að vefurinn veiti krökkum innblástur og hafi hvetjandi áhrif á skákiðkun þeirra,” sagði Agnar Tómas Möller hjá GAMMA við opnun kennsluvefsins í Rimaskóla. Höfundur kennslumyndbandanna er Björn Ívar Karlsson, sem hefur FIDE-þjálfaragráðu og er einn reyndasti skákkennari landsins. Björn talar jafnframt inn á öll myndböndin. Í dag er Björn í fullu starfi við að kenna skák við sjö grunnskóla og hefur undanfarin átta ár kennt við 30 grunnskóla, í Reykjavík, Akureyri og Vestmannaeyjum. Björn hefur komið að kennslu efnilegustu skákmanna landsins auk þess að vera landsliðsþjálfari íslenska kvennaliðsins í skák.
Mest lesið Starfsmaður Base Parking á 170 á bíl viðskiptavinar Innlent Ákærður fyrir leynilega nektarmynd í Nauthólsvík Innlent Lokuðu þorpi í leit að svörum um hvarf tveggja ára drengs Erlent Próftökubann og refsingar fyrir svindlara Innlent Stærsti gígurinn orðinn „formfagur“ Innlent Vill að Færeyjar fái nýjan flugvöll Erlent „Þetta er dagurinn til að skella sér á skíði“ Innlent Hviður allt að 35 metrar á sekúndu og hætt við sandfoki Innlent Lýsisskip strandaði í Fáskrúðsfirði Innlent Umfangsmikið verkefni að hreinsa til eftir slysið Erlent Fleiri fréttir „Reynum allt til að missa þetta ekki í sömu stærð“ Skíðin fundust óskemmd í umferðinni Starfsmaður Base Parking á 170 á bíl viðskiptavinar Vill meiri og betri löggæslu í Mýrdalshreppi Mikil aðsókn í neyðarskýli Próftökubann og refsingar fyrir svindlara Ákærður fyrir leynilega nektarmynd í Nauthólsvík Hádegisfréttir Bylgjunnar Hviður allt að 35 metrar á sekúndu og hætt við sandfoki „Þetta er dagurinn til að skella sér á skíði“ Ógnaði dyraverði skemmtistaðar með hníf Lýsisskip strandaði í Fáskrúðsfirði Stærsti gígurinn orðinn „formfagur“ Vilja einfalda fólki að komast til sjúkraþjálfara Vélsleðamaður lenti í snjóflóði Kvöldfréttir Stöðvar 2 Hætt við framboð og vonast eftir þjóðhollum og guðræknum forseta Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn „Hvergi í verklagsreglum að við séum að reka fólk í burtu“ Aðstoða göngumann á Móskarðshnjúkum Íbúar Hlíða velta fyrir sér dularfullum hvelli Ísland sé í torfkofanum í meðferð alvarlegra atvika Ný og glæsileg skólaþyrping byggð á Hellu Hamfaragámur Bónus tryggir kældan mat í neyðarástandi Fullkomlega sáttur við ákvörðun sína en útilokar ekkert „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Hádegisfréttir Bylgjunnar Svipar til gamalla óupplýstra rána Sýknaður af ákæru um að hafa tekið í háls barns Líkamsárás til rannsóknar eftir nóttina Sjá meira