Innlent

Nýr kantur við Norðfjarðarhöfn vígður

Bjarki Ármannsson skrifar
97 þúsund tonnum hefur verið landað í Norðfjarðar það sem af er ári.
97 þúsund tonnum hefur verið landað í Norðfjarðar það sem af er ári. Vísir/GVA
Nýr sextíu metra viðlegukantur við Norðfjarðarhöfn var vígður á þriðjudag þegar skipið Birtingur NK lagðist upp að. Stækkun stendur yfir á höfninni um þessar mundir til að gera hana rýmri fyrir stærri skip.

Frá þessu er greint í frétt á vef Síldarvinnslunnar hf. Norðfjarðarhöfn hefur undanfarin ár verið ein umsvifamesta höfn landsins og hefur yfir tvö hundruð þúsund tonnum verið landað í höfninni. Það sem af er ári hefur 97 þúsund tonnum verið landað í Norðfjarðarhöfn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×