Viðskipti erlent

Nýr iPhone kynntur 10. september?

Jón Júlíus Karlsson skrifar
Nýr iPhone gæti litið dagsins ljós í næstu viku.
Nýr iPhone gæti litið dagsins ljós í næstu viku. Mynd/Getty Images
Bandaríski tæknirisinn Apple hefur sent boð til helstu fjölmiðla heims á kynningarhóf sem mun fara fram þann 10. september næstkomandi í höfuðstöðvum fyrirtækisins í Kaliforníu. Fastlega er búist við því að ný útgáfa af iPhone snjallsímanum verði kynnt. Samkvæmt Reuters þá mun ný útgáfa af iPhone vera fáanleg í 5-6 litum en hingað til hefur síminn aðeins verið fáanlegur í svartri og hvítri útgáfu.

„Þetta ætti að lýsa upp daginn hjá öllum,“ segir í boðskortinu frá Apple. Búist er við því að Apple muni kynna tvær nýjar vörur í ár. Talið er að iPhone 5S verði kynntur í næstu viku. Sá sími mun skarta nýrri fingurtækni og verður einnig fáanlegur í ódýrari útgáfu úr plasti.

Apple á í harðri baráttu við Samsung á snjallsímamarkaðnum og hefur síðarnefnda fyrirtækið náð ráðandi stöðu í Asíu. Með því að hanna útgáfu af iPhone 5S sem verður ódýrari og úr plasti telja stjórnendur Apple sig geta saxað á markaðsforskot Samsung. Gríðarlegur vöxtur er á snjallsímamarkaði í Asíu. Áætlað er að fjöldi snjallsíma í Kína fjölgi um 48% á þessu ári. Það er því eftir miklu að slægjast í baráttunni á snjallsímamarkaðnum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×