Innlent

Nýr hjólastígur í Reykjavík

Stefán Árni Pálsson skrifar
mynd/reykjavíkurborg.
Nýr hjólastígur var opnaður í dag og markaði þessi einfalda athöfn upphaf árvissrar samgönguviku í Reykjavík, en markmið hennar er að hvetja fólk til umhugsunar um eigin ferðavenjur og virkja það til að nota almenningssamgöngur, hjóla eða ganga.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg. Hjálmar Sveinsson formaður umhverfis- og skipulagsráðs sagði þegar hann opnaði stíginn formlega að stefna Reykjavíkurborgar væri að gera hjólreiðar að alvöru valkosti.

Áhersla væri á uppbyggingu hjólastíga á öllum meginleiðum og með slíkri uppbyggingu væri hlúð að vistvænum samgöngum.

Undanfarin ár hafa endurbætur verið gerðar á hjólastígum í Reykjavík og áfram verður haldið á sömu braut. Fram kemur í tilkynningunni að samkvæmt hjólreiðaáætlun borgarinnar sé stefnt að fimmföldun hjólastíga á fimm árum og tíföldun á tíu árum.

Í tilkynningunni segir að hönnun hjólaleiða fari eftir aðstæðum á hverjum stað og því er þörf á fjölbreyttum lausnum. Miðað er við að aðskilja hjólandi og gangandi umferð og skapa rými fyrir reiðhjól í umferðinni þar sem því verður komið við, eins og segir í aðalskipulagi Reykjavíkur.

Stígurinn nýi liggur frá Suðurhlíð, nálægt vesturenda göngu- og hjólabrúar yfir Kringlumýrarbraut, upp að Sléttuvegi.

Leiðin fyrir hjólreiðafólk verður því mun greiðari og fljótfarnari en eldri leiðir um hverfið. Meðfram Kringlumýrarbraut að vestanverðu var í sumar einnig lagður hjólastígur frá Laugavegi að Sóltúni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×