Viðskipti innlent

Nýr framkvæmdastjóri Skema

Fanney Birna Jónsdóttir skrifar
Rakel Sölvadóttir, stofnandi Skema, og Árdís Ármannsdóttir, nýr framkvæmdastjóri.
Rakel Sölvadóttir, stofnandi Skema, og Árdís Ármannsdóttir, nýr framkvæmdastjóri. Vísir/Skema
Árdís Ármannsdóttir hefur verið ráðin til að gegna stöðu framkvæmdastjóra Skema. Hún tekur við af Þórunni Jónsdóttur sem mun flytjast til starfstöðva móðurfyrirtækis Skema, reKode Education, í Washington-ríki í Bandaríkjunum.

Skema var stofnað af Rakel Sölvadóttur árið 2011 og er leiðandi í kennslu og ráðgjöf í notkun tækni og forritunar á grunn- og framhaldsskólastigi á Íslandi.

Árdís mun stýra rekstri og áframhaldandi uppbyggingu og vexti Skema á Íslandi, en í dag starfa sex manns auk um 20 leiðbeinenda og aðstoðarkennara hjá félaginu. Hún mun einnig leiða stækkun Skema og reKode á Evrópumarkað.

Árdís er með mastersgráðu í stjórnun og stefnumótun frá Háskólanum í Árósum og er með áralanga reynslu í markaðssetningu og stefnumótun auk víðtækrar þekkingar á rekstrarumhverfi nýsköpunar- og samfélagsfrumkvöðlafyrirtækja.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×