Menning

Nýr forstjóri Norræna hússins

Daninn Mikkel Harder Munck-Hansen mun taka við stöðu forstjóra Norræna hússins 1. janúar 2015.
Daninn Mikkel Harder Munck-Hansen mun taka við stöðu forstjóra Norræna hússins 1. janúar 2015.
Daninn Mikkel Harder Munck-Hansen mun taka við stöðu forstjóra Norræna hússins 1. janúar 2015. Það var einróma álit stjórnar Norræna hússins og framkvæmdastjórnar Norrænu ráðherranefndarinnar að tilnefna hann til starfsins.



Mikkel Harder Munck-Hansen hefur síðast gegnt stöðu forstjóra Miðstöðvar fyrir menningu og þróun, en það er sjálfstæð stofnun sem heyrir undir danska utanríkisráðuneytið. Áður hefur hann verið stjórnandi Kvikmyndahátíða Kaupmannahafnar 2008-2009, yfirmaður leikaradeildar Hins konunglega leikhúss 2003-2008, yfirmaður útvarpsleikhúss DR 2000-2003 og leikhússtjóri Kaleidoskop 1994-2000. Síðan 2011 hefur Mikkel Harder Munck-Hansen setið í stjórn Dansehallerne, útnefndur af menningarráðuneyti Danmerkur.



Staða forstjóra Norræna hússins var auglýst laus til umsóknar nú í vor og sóttu 57 aðilar um starfið. Max Dager, fráfarandi forstjóri Norræna hússins, hefur gegnt starfinu síðan 1. janúar 2007.



Forstjóri Norræna hússins er ráðinn til fjögurra ára í senn með möguleika á framlengingu samnings um fjögur ár til viðbótar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×