Skoðun

Nýr forseti

Orri Vigfússon skrifar
Í júní göngum við Íslendingar að kjörborði til að kjósa okkur nýjan forseta og hafa aldrei jafn mörg boðið sig fram til embættisins. Fjörugar umræður eiga sér stað um forsetaefnin og við spyrjum um þekkingu þeirra, reynslu og viðhorf og hvert og eitt okkar metur síðan hvaða kostir eru mikilvægastir í fari þjóðhöfðingja. Þar ber flestum saman um að þekking, festa og virðing fyrir sögu, menningu og náttúru landsins vegi þyngst. Íslenskur efnahagur hvílir að mestu leyti á nýtingu gjafa náttúrunnar, hvort sem er við matvælaframleiðslu, ferðamennsku eða virkjun orkuauðlinda. Sjálfbærni verður því að sitja í öndvegi til að spilla ekki landinu fyrir komandi kynslóðum. Mikilvægt er að forsetinn brýni okkur sjálf í þessum efnum og geti komið trúverðugri ímynd Íslands um sjálfbæra nýtingu náttúrunnar hér á landi á framfæri við alþjóðasamfélagið.

Íslenskir stjórnmálamenn eru ekki allir vel að sér í umhverfismálum og halda sig margir til hlés þegar rætt er um náttúruvernd og málefni umhverfisins; suma virðist skorta skilning í þessum efnum sbr. úrræðaleysi á helstu ferðamannastöðum landsins. Mikilvægasta atvinnugrein þjóðarinnar er nú ferðaþjónusta og hreinleiki náttúru landsins er helsta söluvaran. Erlendir neytendur borga fyrir þá fullvissu að íslenskar vörur séu vistvænar afurðir og ferðamenn koma hingað vegna þess að íslensk náttúra hefur enn orð á sér fyrir að vera hrein og óspillt. Þetta þýðir á markaðsmáli að ímynd Íslands á heimsvísu einkennist af hreinleika og sjálfbærni. Falli blettur á þá ímynd verður erfitt að má hann brott.

Menn horfa til forsetans í þessum efnum, að hann haldi á lofti gildum sjálfbærni í umhverfismálum. Hafi sjálfstæði verið baráttumál á 19. öld og útfærsla landhelginnar á 20. öld, þá er náttúruvernd með sjálfbærni í huga keppikeflið á 21. öld, ekki aðeins hér á landi heldur um allan heim. Náttúruvernd og sjálfbærni eru í raun sameiginlegt markmið mannkynsins, óháð stjórnmálastefnum og trúarbrögðum.

Andri Snær Magnason forsetaframbjóðandi hefur þegar vakið verðskuldaða athygli á erlendri grund fyrir bækur sínar og sjónarmið í umhverfismálum. Á hann er hlustað meira en nokkurn annan Íslending á þessum vettvangi. Þekking hans, hugmyndafræði og trúverðugleiki marka honum skýran sess. Á forsetastóli yrði hann enn öflugri málsvari þeirra meginatriða sem ráða munu afkomu þjóða heimsins næstu áratugina – og aldirnar. Jafnframt hef ég persónulega reynslu af því að Andri Snær er heillandi mannasættir og hann mun móta forsetaembættið með þeim alþýðlega virðuleika sem þjóðin kallar eftir.

Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 3. júní.




Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×