Innlent

Nýr dómsmálaráðherra heimsækir ríkislögreglustjóra

Atli Ísleifsson skrifar
Embætti ríkislögreglustjóra er fyrsta embættið sem ráðherra heimsækir sem dómsmálaráðherra.
Embætti ríkislögreglustjóra er fyrsta embættið sem ráðherra heimsækir sem dómsmálaráðherra. Mynd/Lögregluvefurinn
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra og dómsmálaráðherra, heimsótti ríkislögreglustjóra fyrr í morgun ásamt Ragnhildi Hjaltadóttur, ráðuneytisstjóra.

Í tilkynningu frá lögreglunni segir að embætti ríkislögreglustjóra sé fyrsta embættið sem ráðherra heimsækir sem dómsmálaráðherra.

Haraldur Johannessen ríkislögreglustjóri tók á móti ráðherranum og kynnti honum helstu verkefni embættisins og ræddu þeir lögreglu- og almannavarnamálefni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×