Innlent

Nýr bátur bylting fyrir Landhelgisgæsluna

Gunnar Atli Gunnarsson skrifar
Landhelgisgæslan fékk í dag afhentan nýjan strandgæslubát frá íslensku skipasmíðastöðinni Rafnar. Forstjóri gæslunnar segir bátinn hafa mikla þýðingu og geri hana meðal annars nú betur í stakk búna til að komast hratt á slysavettvang.

Báturinn hefur verið í þróun í samvinnu við Landhelgisgæsluna frá árinu 2011 en hann byggir á algjörlega nýrri hönnun á þessari tegund báta. Hann er sérsmíðaður og sérstaklega hannaður eftir þörfum gæslunnar af íslensku skipasmíðastöðinni Rafnar, en fyrirtækið er hugarfóstur Össurar Kristinssonar, stofnanda Össurar hf.

„Þessir bátar okkar, þeir eru í rauninni á plani þegar að þeir leggja af stað. Það er kjölur undir þeim sem er symetrískur og þeir mynda enga bógöldu heldur mynda þeir þrýsting í vatninu, sem að þegar kemur aftur fyrir miðju, er tekin til baka. Hugmyndin kom til mín fyrir 25 árum og síðan byrjaði ég að vinna í þessu fyrir 10 árum síðan.” segir Össur.

Báturinn er búinn allra fullkomnasta tækjabúnaði, meðal annars hitamyndavél og sónartæki til að leita á hafsbotni.

Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, segir bátinn hafa mikla þýðingu fyrir gæsluna og sé í raun bylting á ákveðnum sviðum.

„Við erum betur í stakk búin til að komast hratt á slysavettvang. Við getum nýtt þennan bát til þyrluæfinga og í ýmsar séraðgerðir. Þetta er heilmikil breyting fyrir okkur,” segir Georg.

Þetta er íslenskt hugvit og íslensk tækni. Það hlýtur að vera gaman fyrir gæsluna að fá slíkan bát?

„Jú, það er mjög mikilvægt. Þetta íslenska hugvit er að skila sér í gríðarlega góðum eiginleikum. Í raun er þetta allt annað en við höfum kynnst. Við höfum gert út báta í áratugi og eiginleikar þessa báts eru allir miklu miklu betri en við höfum kynnst,” segir Georg.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×