Innlent

Nýr bæjarstóri tekinn til starfa í Hafnarfirði

ingvar haraldsson skrifar
Rósa Guðbjartsdóttir, formaður bæjarráðs og Haraldur L. Haraldsson nýr bæjarstjóri í Hafnarfirði takast í hendur.
Rósa Guðbjartsdóttir, formaður bæjarráðs og Haraldur L. Haraldsson nýr bæjarstjóri í Hafnarfirði takast í hendur.
Haraldur L. Haraldsson hóf í gær störf sem bæjarstjóri í Hafnarfirði. Haraldur hefur talsverða reynslu af sveitarstjórnamálum en hann var bæjarstjóri á Ísafirði í áratug og sveitastjóri í Dalabyggð í fimm ár.

Rósa Guðbjartsdóttir, formaður bæjarráðs, segir ánægjulegt að fá Harald til starfa og er þess fullviss að „reynsla og þekking Haraldar eigi eftir að nýtast okkur í Hafnarfirði vel.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×