Sport

Nýliðinn leiddi Patriots til sigurs

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Brissett fagnar snertimarki sínu í nótt.
Brissett fagnar snertimarki sínu í nótt. vísir/getty
Þriðji leikstjórnandi New England Patriots, nýliðinn Jacoby Brissett, varð að spila fyrir liðið gegn Houston í nótt og hann leiddi Patriots til stórsigurs, 27-0.

Tom Brady, aðalleikstjórnandi Patriots, er í banni og varamaður hans, Jimmy Garoppolo, meiddist í síðasta leik. Þá stóð aðeins eftir hinn 23 ára gamli Jacoby Brissett. Ef hann hefði meiðst þá var ekki til annar leikstjórnandi til þess að taka við af honum. Útherjinn Julian Edelman hefði þá farið í að kasta boltanum.

Brissett var valinn númer 91 í nýliðavalinu síðast og var eini leikmaðurinn í valinu sem hafnaði því að vera með umboðsmann.

Það er skemmst frá því að segja að strákurinn stóð sig frábærlega. Hann skoraði fyrsta snertimark leiksins eftir frábært hlaup og spilaði síðan skynsamlega. Flott fraumraun.

New England er því búið að vinna alla þrjá leiki sína á tímabilinu og það án Tom Brady. Liðið virðist geta unnið með hvaða leikstjórnanda sem er. Brady á einn leik eftir í banni og er hann kemur til baka verður liðið fyrst illviðráðanlegt.

Brissett kláraði 11 af 19 sendingum sínum í nótt fyrr 103 jördum. Hann hljóp 48 jarda og skoraði snertimark eins og áður segir. Hann kastaði engum bolta frá sér heldur.

Milljarðamaðurinn Brock Osweiler, leikstjórnandi Houston, var arfaslakur. Kláraði 24 af 41 sendingu sinni fyrir 196 jördum. Ekkert snertimark og einn tapaður bolti. Þetta var fyrsta tap Houston í vetur.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×