Bíó og sjónvarp

Nýliði kynnir Óskarinn

Stefán Árni Pálsson skrifar
Kimmel þykir virkilega fyndinn.
Kimmel þykir virkilega fyndinn. vísir/getty
Spjallþáttstjórnandinn Jimmy Kimmel verður kynnir á Óskarsverðlaunahátíðinni sem fram fer í 89. skipti í febrúar. Þetta staðfestir hann sjálfur á Twitter.

Þetta er í fyrsta skipti sem Kimmel tekur verkefnið að sér.

„Já, ég verð kynnir á Óskarnum, þetta er ekki hrekkur, og ef þetta er hrekkur þá mun ég hefna mín á akademíunni,“ segir Kimmel á Twitter.

Þessi 49 ára grínisti mun því fá tækifærið þann 26. febrúar en gríðarleg pressa er á kynninum ár hvert og fylgist heimurinn grannt með því hvernig hann stendur sig.

Grínistinn Chris Rock tók hlutverkið að sér á síðasta ári og horfðu aðeins 34,3 milljónir manna á útsendinguna í Bandaríkjunum. Ekki hafa færri horft í átta ár.

Hér má sjá lista yfir alla þá sem hafa tekið þetta hlutverk að sér í sögunni.

Jimmy Kimmel.Vísir/AFP
Hér að neðan má sjá Kimmel í sama hlutverki, en á Emmy-verðlaununum í upphafi ársins.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×