Íslenski boltinn

Nýliðar KV sóttu þrjú stig upp á Skaga

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Vísir/Daníel
Kristófer Eggertsson tryggði KV mjög óvæntan 1-0 sigur á ÍA á Akranesi í kvöld þegar liðin mættust í 9. umferð 1. deildar karla en Skagamenn hefðu endurheimt toppsæti deildarinnar með sigri.

 

Kristófer skoraði sigurmarkið með glæsilegum skalla á 53. mínútu leiksins en þetta var aðeins þriðji sigur KV-liðsins í sumar. KV komst með þessum sigri upp úr fallsæti deildarinnar.

Skagamenn voru án Garðars Bergmanns Gunnlaugssonar, markahæsta leikmanns deildarinnar, í kvöld og munaði um minna. Garðar hefur skorað 9 mörk í 8 leikjum í sumar.

Hilmar Rafn Emilsson og Matthías Guðmundsson tryggði Haukum á sama tíma 2-0 útisigur á Selfossi en bæði mörk Haukaliðsins komu á síðustu tólf mínútum leiksins.

Upplýsingar um markaskorara eru fengnar frá ksi.is og úrslitasíðunni úrslit.net.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×