Lífið

Nýjustu twerk-stjörnurnar

Danshópurinn hefur hlotið danskennslu frá Jennifer Lopez.
Danshópurinn hefur hlotið danskennslu frá Jennifer Lopez. mynd/skjáskot
Slúðurmiðlar erlendis fullyrða að nú megi stórstjörnurnar Miley Cyrus og Beyoncé fara að vara sig þar sem nýjustu twerk-stjörnurnar séu síberískur danshópur sem sérhæfir sig í dansinum.

Danshópurinn Fraules Dance Centre hefur notið gríðarlegrar velgengni og hefur nýjasta dansmyndband þeirra fengið yfir þrjátíu milljón áhorf á vefsíðunni Youtube.

Danshópurinn sérhæfir sig í svonefndum twerk-dansi en sá dans gengur út á það að hrista rassinn í takt við tónlistina og hefur hópurinn fengið kennslu frá virtum danskennurum á borð við Jennifer Lopez og Danielle Polanco sem hefur meðal annars kennt Beyoncé sjálfri og Janet Jackson.

Myndbandið fræga má sjá hér að neðan en þar dansa stúlkurnar við lag Major Lazer en rafhljómsveitin varð svo hrifin af myndbandinu að sveitin birti það sjálf á samfélagsmiðlum sínum og eiga síberísku dansstúlkurnar því hljómsveitinni mikið að þakka þeirrar velgengni sem þær hafa notið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×