Bíó og sjónvarp

Nýjar myndir rata í dagsljósið af Nicolas Cage máta Superman-búning

Birgir Olgeirsson skrifar
Hér má sjá Nicolas Cage máta Superman-búninginn.
Hér má sjá Nicolas Cage máta Superman-búninginn.
Á tíunda áratug síðustu aldar var Nicolas Cage einn heitasti leikari Hollywood og TimBurton einn mest spennandi leikstjórinn. Burton hafði á þeim tíma hug á að gera Superman-mynd þar sem Óskarsverðlaunahafinn Nicolas Cage átti að fara með hlutverk ofurmennisins. Myndin gekk undir vinnuheitinu SupermanLives en varð aldrei að veruleika.

Óneitanlega hefðu margir viljað sjá hvernig ofurmenninu hefði vegnað í höndum Burtons og Cage en nú er á leiðinni í kvikmyndahús heimildarmyndin TheDeath of SupermanLives sem reynir að varpa ljósi á hvers vegna þessi mynd varð ekki að veruleika.

Nú hefur verið gefin út klippa úr þessari heimildarmynd þar sem Cage sést máta nýja Superman-búninginn á meðan Burton fylgist með en þessi klippa hefur kitlað forvitnistaugar aðdáenda ofurhetjumyndasagna. Hægt er að sjá klippuna hér.

Margar sögur hafa verið sagðar af gerð þessarar myndar sem aldrei var kláruð. Meðal þeirra er leikstjórinn og Íslandsvinurinn KevinSmith sem var fenginn af kvikmyndafyrirtækinu Warner bros. til að skrifa handrit myndarinnar. Fyrir þá sem ekki hafa heyrt þá sögu nú þegar má heyra hana í spilaranum hér fyrir neðan en hún veitir afar forvitnilega sýn á bransann í Hollywood.

Seinni hluta sögunnar má sjá hér. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×