Viðskipti erlent

Nýjar GoPro vélar birtast í hillum

Samúel Karl Ólason skrifar
Mynd/GoPro.com
Ný tegund GoPro véla birtist í hillunum á næstu dögum. GoPro vélarnar hafa farið sigurför um heiminn frá því þær komu á markað fyrir fimm árum. Stofnandi GoPro fékk hugmyndina á brimbrettaferðalagi eftir að hafa fest myndavél á sig með teygju.

Hero4 kemur í þremur útgáfum. Hero4 Silver kostar 400 dali og er með snertiskjá. Önnur útgáfa, sem kostar einungis 130 dali. Þriðja útgáfan heitir Hero4 Black, en henni er ætlað að höfða til atvinnumanna. Með henni er hægt að taka upp myndbönd í fjórfaldri háskerpu.

Á vef Wall Street Journal þar sem farið er yfir kosti og galla vélanna segir að stærsti galli þeirra sé að rafhlaðan endist einungis í tvær og hálfa klukkustund.

Vélarnar koma á markaði ytra þann 5. október næstkomandi.

Hér má sjá auglýsingu GoPro. Hér má sjá myndbönd sem blaðamaður WSJ tók upp til að prófa vélarnar.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×