Innlent

Nýir flokkar senuþjófar í kosningunum

nína hjördís þorkelsdóttir skrifar
„Þetta eru líklegast einhverjar merkilegustu kosningar sem við höfum farið í gegnum," sagði Þórður Snær Júlíusson ritstjóri Kjarnans í Sprengisandi á Bylgjunni í morgun.

Þórður Snær, ásamt Grétari Þór Eyþórssyni prófessor í stjórnmálafræði í Háskólanum á Akureyri voru viðmælendur Kristjáns Kristjánssonar í þættinum sem er enn í loftinu.

Nýir flokkar sækja í sig veðrið

Þórður og Grétar telja niðurstöður þingkosninganna merkilegar fyrir margar sakir. Nýir flokkar hafa sótt í sig veðrið á meðan hinir rótgrónu flokkar Samfylkingar og Framsóknar hlutu sögulega lága kosningu. 

„Nýju flokkarnir eru umbótaflokkar og vilja fara aðrar leiðir en gömlu flokkarnir,“ sagði Þórður Snær og bætti við að sér þyki athyglisvert að þessir nýju flokkar boði jákvæðni og umbætur, ólíkt nýjum flokkum víða í Evrópu sem margir hverjir ala á ótta og útlendingahatri.

Grétar nefnir í þessu samhengi gott gengi glænýs flokks, Viðreisnar, sem náði 10,5 prósenta fylgis á landsvísu og fær sjö þingmenn. Fáir flokkar hafa náð svo góðum árangri í fyrstu kosningum sínum en Borgaraflokkur Alberts Guðmundssonar náði einnig sjö þingmönnum þegar hann bauð fram í Alþingiskosningunum 1987.

Allir þingmenn Samfylkingarinnar af landsbyggðinni

Þórður Snær bendir á að mikill munur sé á fylgi flokkanna á höfuðborgarsvæðinu annars vegar og landsbyggðinni hins vegar. Stuðningur við Vinstri græn var mikill á höfuðborgarsvæðinu á meðan Samfylkingin náði ekki inn neinum þingmanni í kjördæmum Reykjavíkur og Kraganum.

Að mati Grétars eru þessar niðurstöður merkilegar enda hefur Samfylkingin hingað til átt sitt höfuðvígi á Stór-Reykjavíkursvæðinu.

Inga Sæland er formaður Flokks fólksins.
Mikið fylgi Pírata í könnunum óánægjufylgi

Píratar mældust með mikið fylgi í skoðanakönnunum í vor og sumar og útlit var fyrir að flokkurinn ynni stórsigur í kosningunum. Á tímabili mældust Sjálfstæðisflokkurinn og Píratar svipaðir að stærð en Sjálfstæðisflokkurinn jók við fylgi sitt í aðdraganda kosninga. Að lokum fór svo að Sjálfstæðisflokkurinn hlaut 29 prósent atkvæða en Píratar einungis 14,5.

Aðspurðir að því hvers vegna dró úr stuðningi við Pírata vilja þeir Grétar og Þórður meina að ýmsir þættir hafi haft áhrif. Í fyrsta lagi nefna þeir þá staðreynd að ungt fólk mæti síður á kjörstað en markhópur Pírata hafi verið í yngra lagi.

Þórður nefnir einnig að líkur hafi verið á að fylgi Pírata í kjölfar viðburða vorsins hafi verið óánægjufylgi. „Þetta fylgi dreifðist síðan á aðra flokka,“ segir Þórður en að hans mati hafi alltaf verið viðbúið að Píratar myndu ekki ná yfir þrjátíu prósenta fylgi.

Flokkur fólksins sigurvegari B-deildar

Grétar og Þórður eru sammála um að persónufylgi hafi verið áberandi í kosningunum. Leiðtogar Sjálfstæðisflokks og Vinstri grænna hafi styrkt stöðu flokkanna á meðan forysta Oddnýjar G. Harðardóttur hafi ekki skilað Samfylkingunni tilætluðum árangri. 

Að mati Þórðar Snæs var árangur Flokks fólksins, með Ingu Sæland í forystu, athyglisverður. „Þeir eru breyta sem skiptir miklu máli í þessari niðurstöðu.“


Tengdar fréttir

Viðreisn er í lykilstöðu

Stjórnarmyndunarumboðið mun ráðast af því hvað Benedikt Jóhannesson og Viðreisn velur að mati stjórnmálafræðings.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×