Fótbolti

Nýi þjálfarinn hjá Verona talar vel um Emil

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Emil Hallfreðsson.
Emil Hallfreðsson. Vísir/AFP
Luigi Delneri var í dag ráðinn nýr þjálfari hjá ítalska A-deildarliðinu Hellas verona en hann tekur við af Andrea Mandorlini sem var rekinn í gær.

Luigi Delneri er 65 ára gamall og þjálfaði síðast Genoa frá 2012-13. hann hefur þjálfað stórlið eins og Roma (2004-05) og Juventus (2010-11).

Luigi Delneri hefur mikla reynslu af þjálfun á Ítalíu en hann hefur meðal annars stýrt nágrannaliðinu Chievo Verona í tvígang, fyrst 2000-04 og svo aftur 2006-07.

„Ég vil þakka Maurizio Setti forseta fyrir þetta tækifæri því ég vildi komast aftur í fótboltann," sagði Luigi Delneri á blaðamannafundi í dag.

„Hér er félag með mikla ástríðu og mikla hefð. Ég sé gæði í leikmannahópnum og ég sé mikla möguleika að koma liðinu í gang á ný. Mandorlini var fórnarlamb slæmra úrslita að undanförnu en það tekur ekkert frá því sem hann gerði fyrir Hellas Verona," sagði Delneri.

„Við munum gera allt til þess að halda okkur í deildinni. Ég vil byggja ofan á starf Mandorlini en ekki rífa allt niður. Ég vil sjá lið sem gefur allt í þetta og er samkeppnishæft á móti öllum," sagði Delneri.

Delneri hrósaði íslenska landsliðsmanninum Emil Hallfreðssyni sem var fastamaður í liðinu þau fimm ár sem Andrea Mandorlini þjálfaði liðið.

„[Luca] Toni and [Giampaolo] Pazzini geta alveg spilað saman og það er líka fullt af öðrum hæfileikaríkum leikmönnum í liðinu eins og  [Emil] Hallfreðsson [Federico] Viviani [Jacopo] Sala and [Luca] Siligardi," sagði Delneri.

Hellas verona hefur enn ekki unnið leik í deildinni á þessu tímabili og situr eitt á botni deildarinnar með sex stig úr fjórtán leikjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×