Bílar

Nýi rallýbíll Skoda

Finnur Thorlacius skrifar
Skoda Fabia R5 Concept.
Skoda Fabia R5 Concept.
Skoda hefur náð miklum árangri í rallkeppnum síðustu ára og unnið fjölmargar keppnir í Intercontinental Rally Challenge, FIA Asia-Pacific Rally Championship og FIA European Rally Championship keppnunum.

Skoda kynnti Fabia S2000 rallbíl sinn árið 2009, en nú er komið að nýhönnuðum bíl og tóku bestu rallökumennirnir sem keppa á Skoda bílum þátt í hönnun hans. Bíllinn ber nafnið Skoda Fabia R5 Concept og verða rallbílar Skoda byggðir á honum næstu árin.

Þessi bíll er með 1,6 lítra forþjöppuvél, 5 gíra beinskiptingu, MacPherson dempara allan hringinn og vegur aðeins 1.230 kíló. Skoda ætlar að frumsýna þennan  bíl á Essen Motor Show í Þýskalandi þessa helgina, ásamt öllum framleiðslubílum sínum. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×