Golf

Nýi Masters-meistarinn fagnaði með fjölskyldunni | Myndir

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jordan Spieth með afa sínum Bob.
Jordan Spieth með afa sínum Bob. Vísir/AP
Jordan Spieth varð í gærkvöldi næstyngsti kylfingurinn sem fagnar sigri á Mastersmótinu í golfi en þessi 21 árs strákur vann öruggan fjögurra högga sigur á mótinu í ár.

Jordan Spieth var með forystuna allan tímann og endaði á því að leik holurnar 72 á 18 undir pari. Hann varð fyrsti maðurinn frá 1976 sem var í forystu eftir alla fjóra dagana á mótinu.

Spieth fagnaði sigrinum með fjölskyldu sinni og kylfubera í lokin. Hann faðmaði bæði afa sinn Bob og faðir sinn Shawn auk þess auðvitað að smella kossi á kærustuna Annie Verret.

Jordan Spieth hefur fengið mikið hrós fyrir framkomu sína innan sem utan vallar og Bandaríkjamenn eru vissir að þar sé komið næsta súperstjarna golfsins.

Frammistaða hans á fyrsta risamóti ársins bendir ekki til annars en þar sem sé kylfingur sem getur safnað að sér sigrum á næstu áratugum haldi hann rétt á spöðunum,

Hér fyrir neðan má nýja Masters-meistarann fagna með fjölskyldunni sinni eftir sigurinn í gærkvöldi.

Jordan Spieth kyssir hér kærustuna Annie Verret.Vísir/AP
Jordan Spieth faðmar föður sinn Shawn.Vísir/AP
Jordan Spieth með afa sínum Bob.Vísir/AP
Vísir/AP
Vísir/AP

Tengdar fréttir

Jordan Spieth uppfyllti æskudrauminn og sigraði á Masters

Sigraði fyrsta risamót ársins með fjórum höggum eftir magnaða frammistöðu á Augusta National vellinum alla helgina. Hélt ró sinni og gerði það sem þurfti til þess að sigla sigrinum heim á lokahringnum í kvöld




Fleiri fréttir

Sjá meira


×