Viðskipti innlent

Nýherji skilar hagnaði á öðrum ársfjórðungi

Fanney Birna Jónsdóttir skrifar
Finnur Oddsson forstjóri Nýherja.
Finnur Oddsson forstjóri Nýherja. Vísir/Nýherji
Heildarhagnaður Nýherja á öðrum ársfjórðungi nam 69 milljónum króna og 125 milljónum króna á fyrri árshelmingi.

EBITDA félagsins nam 207 milljónum á öðrum ársfjórðungi og 398 milljónum á fyrri árshelmingi.

„Rekstur Nýherja er að styrkjast og afkoma á öðrum ársfjórðungi er í takt við væntingar. Jákvæð afkoma er hjá öllum félögum samstæðunnar á fyrri helmingi árs,“ segir Finnur Oddsson forstjóri Nýherja í tilkynningu frá félaginu.

„Rekstur Applicon á Íslandi er stöðugur og skilar ágætri afkomu og hagnaður er af rekstri Applicon í Svíþjóð, sem eru mikilvæg umskipti eftir taprekstur síðustu ár. Umtalsverður tekjuvöxtur er áfram hjá TM Software, einkum vegna mikillar sölu á Tempo hugbúnaði, sem nú er seldur til ríflega 100 landa í gegnum netið. Þessi vöxtur Tempo er okkur afar mikilvægur, allar þær tekjur eru erlendar og hafa aukist um 86% á milli ára. Tæplega helmingur veltu TM Software er því í erlendri mynt.“

Finnur segir að tekjur Nýherja af vörusölu og rekstrarþjónustu á innanlandsmarkaði séu stöðugar en afkoma batni lítillega á milli ára, sem sé í samræmi við væntingar. Gert sé ráð fyrir hóflegum vexti í tekjum og afkomu samstæðunnar á næsta ársfjórðungi.

„Að undanförnu höfum við unnið eftir áætlun sem miðar að því að einfalda skipulag Nýherjasamstæðunnar, efla lausnaframboð og þjónustu við viðskiptavini, bæta afkomu og styrkja eiginfjárstöðu. Okkur hefur miðað vel áleiðis en töluvert er enn í land, sérstaklega þegar horft er til fjármagnsskipunar félagsins. Framundan eru frekari úrbætur þar á og horfum við þar m.a til skipulags og uppbyggingar samstæðunnar,“ segir Finnur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×