Viðskipti innlent

Nýherji kannar sölu á meirihluta í Tempo

Haraldur Guðmundsson skrifar
Tempo er alfarið í eigu Nýherja.
Tempo er alfarið í eigu Nýherja. Vísir/GVA
Nýherji gæti gengið frá sölu á meirihluta í Tempo, dótturfélagi upplýsingatæknifyrirtækisins, til erlendra fjárfesta síðar á árinu. Þetta kom fram í ræðu Ívars Kristjánssonar, stjórnarformanns Nýherja, á aðalfundi fyrirtækisins á föstudag.

„Til að nýta fyrrgreind tækifæri sem best og auka virði hluthafa Nýherja horfum við til mögulegs samstarfs við erlenda fjárfesta um að styðja við alþjóðlegan vöxt Tempo,“ sagði Ívar.

„Við sjáum það fyrir okkur að niðurstaða slíks ferlis geti mögulega falið í sér sölu á meirihluta hlutafjár Tempo en þó með áframhaldandi aðkomu Nýherja sem eiganda,“ sagði Ívar. Stjórnarformaðurinn sagði vinnu að undirbúningi söluferlisins miða ágætlega, en það er í höndum fjárfestingarbankans AGC Partners í Boston, og að dregið geti til tíðinda á árinu. Ekki væri hægt að segja hvenær söluferli geti hafist.

„Hreinskilna svarið við því er að það er enn sem komið er óljóst en mun í öllum aðalatriðum ráðast af því hvernig okkur gengur að kynna félagið í hópi vænlegra samstarfsaðila og hins vegar að mati okkar og AGC hversu tilbúið félagið er til stöðu til dæmis út frá lausnum Tempo og markaðsaðstæðum fyrir þær.“

Tekjur Tempo voru 8,2 milljónir dala árið 2015. Í fyrra jukust þær um 40 prósent og námu því um þrettán milljónum dala. Fyrirtækið var stofnað árið 2009 og er leið­andi hug­bún­að­ar­fyr­ir­tæki sem þróar verk­efna­stýr­ing­ar- og við­skipta­hug­búnað (B2B) fyrir JIRA-kerfið frá Atlassian. Viðskiptavinir þess eru allt frá smáum sprotafyrirtækjum til Fortune 500 fyrirtækja. Nýherji kannaði einnig árið 2015 áhuga fjárfesta á kaupum á 25 prósenta hlut í félaginu. Niðurstaða þeirrar könnunar var sú að bæði innlendir og erlendir fjárfestar lýstu vilja til að eignast meirihluta í Tempo. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×